kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 9. þm. Reykv. n., Pawel Bartoszek, fyrir spurningu til mín. Það er rétt að þetta mál bar á borð fyrri ríkisstjórnar og það er ástæða fyrir því að það var ekki klárað í tíð þeirrar ríkisstjórnar. Ég get sagt það hér að ég skil mjög vel hvernig þetta tekjuinnflæði ríkissjóðs riðlaðist vegna tilkomu hreinorkubíla, rafmagnsbíla. Það er sanngjarnt eða réttara sagt ósanngjarnt að einhverjir nýti hér allt vegakerfið án þess að taka þátt í kostnaði við vegakerfið og uppbyggingu þess. Þess vegna studdi ég að það kæmi kílómetragjald á rafmagnsbíla og ég tel að allir þeir sem eru að nýta vegakerfið eigi að bera jafnan hlut í kostnaði við það kerfi. Aftur á móti hef ég alltaf verið á móti upptöku á þessu kerfi í heild sinni eins og hér er lagt fram. Ég þarf ekki að minna hv. þingmann á það að ég er þingmaður í landsbyggðarkjördæmi, víðfeðmasta kjördæmi landsins. Íbúar þess kjördæmis þurfa að reiða sig á bílinn og samgöngur í öllu sínu daglega lífi. Þess vegna verður það svo. Mitt kjördæmi er, má segja, matarkista Íslands, þar sem lunginn af matvælum sem við neytum á hverjum degi verður til og þarf að flytja til höfuðborgarsvæðisins. Það liggur í hlutarins eðli að þetta mun ýta undir hækkun á matarverði og þetta mun þýða það að flutningskostnaður mun aukast. Þetta mun t.d. ýta undir hækkun byggingarkostnaðar á húsnæði úti á landi þar sem flytja þarf allt byggingarefni langan veg. Ég svara hv. þingmanni því þannig: Já, ég hef verið á móti þessari breytingu frá upphafi en ég var hlynnt því að setja kílómetragjald á hreinorkubíla þannig að allir þeir sem væru að nýta vegakerfið myndu taka þátt í að greiða fyrir það.