kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek aftur fyrir spurningar til mín. Þegar maður horfir á fjárlög núverandi ríkisstjórnar, ríkisstjórnar sem fór mikinn í kosningabaráttunni fyrir rúmu ári og sagðist ekki ætla að hækka skatta á venjulegt fólk — og þessi sama ríkisstjórn byrjaði á starfsdegi ríkisstjórnar í Stykkishólmi, ef ég man rétt, í lok ágúst á að tilkynna okkur um að hér yrði mikið verðmætasköpunarhaust, að ríkisstjórnin ætlaði að ýta undir fyrirtæki þannig að þau gætu eflst og búið hér til öflugar tekjur og skapað störf til að byggja undir velferðina — þá verð ég að segja að það urðu mér mikil vonbrigði að sjá fjárlögin, fyrsta frumvarp þessarar ríkisstjórnar, þegar þau voru lögð hér fram í upphafi þessa þings í september. Þá sáum við áherslur þessarar ríkisstjórnar sem voru sannarlega skattahækkanir og aftur skattahækkanir. Hv. þingmaður veit nákvæmlega hvaðan ég er að koma þar sem ég hef lifað og hrærst í atvinnulífinu alla ævi. Ég er mikil talskona þess að við eigum að vera með lága skatta. Við eigum að vera með einfalt skattkerfi og við eigum að vera með skilvirkt skattkerfi. Þetta frumvarp er akkúrat ekki það. Þetta frumvarp eykur flækjustig, er ekki skilvirkt, er varla skiljanlegt fyrir venjulegt fólk þarna úti. Ég sé að klukkan er farin að blikka á mig þannig að ég vil fá að svara spurningum hv. þingmanns. Ég verð að segja: Þetta er skattpíningarstjórn, þegar það á að hækka skatta á almenning í landinu um 25 milljarða. Svo verð ég að segja: Jú, það voru mistök að setja innviðagjald á skemmtiferðaskip. Maður verður bara maður að meiri að geta þá viðurkennt þau mistök og við sjáum það núna hringinn í kringum landið að skemmtiferðaskipin eru ekki að koma á minni staðina. Og svo ætla ég að fagna því sérstaklega að tekjuskattur á lögaðila sé að lækka. Þið megið lækka hann enn frekar, kæri hv. þm. Pawel Bartoszek, því að það mun hjálpa atvinnulífinu.