157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:06]
Horfa

Anton Sveinn McKee (M):

Frú forseti. Við ræðum hér fyrirhugaða breytingu á kílómetragjaldi og gjaldtöku á ökutækjum allra landsmanna og fyrirtækja til að fjármagna vegakerfið. Enn og aftur virðist hæstv. ríkisstjórn ætla að brjóta kosningaloforð sín og hækka skatta á venjulegt fólk um heila 3,3 milljarða og í þokkabót að flækja lífið fyrir fólki og fyrirtækjum. Ég skal viðurkenna að ég skil vel markmiðin með þessu frumvarpi og hugmyndafræðilegar forsendur fyrir því að sá sem noti skuli greiða fyrir þjónustuna, hvað þá notkun veganna hjá okkur. En því miður er það svo að aðferðafræðin sem lögð er til í þessu frumvarpi mun einungis stækka báknið, auka ríkisumsvif og þar af leiðandi flækjustig, hækka skatta, skerða samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og ekki bætir þetta heldur úr upplifun þeirra ferðamanna sem koma hingað. Á sama tíma má spyrja sig hvort þörf sé á aukinni skattheimtu í þessum málaflokki. Jú, vissulega er innviðaskuld í vegakerfinu, en gjöld sem eru tekin af bifreiðum í dag eru gróflega 70 milljarðar og eins og er fara einungis 50 milljarðar út í vegakerfið. Þá spyr maður sig hvort ekki hefði verið skynsamlegra að lækka einfaldlega þá 140 milljarða útgjaldaaukningu sem hæstv. ríkisstjórn er að leggja fram í þessum fjárlögum, sem við ræddum í seinustu viku, um einmitt þessa 3 milljarða til að koma út á nettó eða núlli í þessu máli. Að einhverju leyti mætti bara bakka með þetta mál yfir höfuð til að þetta vefjist ekki fyrir atvinnulífinu og flæki líf almennings. Ríkisstjórnin hefur kvartað sáran undan óstjórn fyrrverandi ríkisstjórnar og slæmum málum frá henni en af einhverjum ástæðum heldur hún áfram með þetta fráleita mál sem fyrrverandi ríkisstjórn lagði fyrir. Sem betur fer hafa þeir flokkar sem eru í stjórnarandstöðu nú og ætluðu að leggja málið fyrir í fyrrverandi ríkisstjórn séð að sér og hafa nú breytt um skoðun varðandi kílómetragjaldið og gera það af góðri ástæðu, út af því að útfærslan er einfaldlega óskilvirk.

Oft þegar fyrirtæki, og líka bara almenningur í landinu, taka ákvörðun um hvernig ákveða eigi fjárhag ársins eða hvernig eigi að nýta þann sparnað sem til er er spurt: Hver er kostnaðurinn við að gera ekki neitt? Hver er kostnaðurinn við að halda núverandi kerfi? Þetta er auðvitað mikilvæg spurning af því að í síbreytilegu umhverfi atvinnulífsins getur einmitt verið gífurlegur kostnaður við það að sitja og gera ekki neitt. Þú getur dregist aftur úr í tæknibreytingum og tækniþróun og látið samkeppnisaðila komast fram úr þér, en þetta er ekki dæmi um slíkt mál. Það virðist vera að þetta sé þannig mál að kostnaðurinn við að gera ekki neitt og halda núverandi kerfi sé einmitt skilvirkara og hagkvæmara fyrir alla landsmenn og fyrirtækin. Áætlaður kostnaður fyrir ríkið af þessu máli, og þá af þeirri umsýslu sem mun leggjast á ríkið og Skattinn, til að innheimta þessi gjöld, er talinn vera um 250 millj. kr. Ef við berum það saman við þá 3,3 milljarða sem á að innheimta í aukinni skattheimtu eru það rúmlega 8% af áætluðum skatttekjum af þessu nýja kerfi. Er það ekki ótrúlega hátt hlutfall að fara í þessa breytingu og gróflega 10% eru bara að fara í umsýslukostnað? Ég tel alla vega ekki verið að fara vel með almannafé með því einfaldlega að setja upp kerfi sem mun árlega kosta okkur 8% af auknum tekjum. Svo má líka deila um hvort þessir 3,3 milljarðar séu yfir höfuð að fara að koma inn. Munu þessi 8 eða 10% halda eða mun kostnaðurinn fara enn hærra? Þetta mál mun jú hafa áhrif á samkeppnishæfni okkar Íslendinga í ferðaþjónustu, einni af okkar stærstu útflutningsgreinum sem kemur með um 600 milljarða inn í þjóðarbúið í tekjur og er gróflega einn þriðji af okkar útflutningstekjum. Maður spyr sig: Eru þetta þau skilaboð og þau kerfi sem við viljum vera að búa til fyrir atvinnulífið? Þetta er einfaldlega sígilt og klassískt dæmi um það þegar ríkið fer fram af heilindum og ætlar að gera eitthvað vel en er í lok dags bara að stækka báknið og embættismannakerfið. Ríkið á í öllu sínu að reyna að einfalda lífið hjá fólki og fyrirtækjum í landinu og ég sé ekki hvernig þetta á að gera það.

Það má líka velta því fyrir sér hvort þetta mál sé bara enn ein réttlætingin fyrir skattahækkunum eins og veiðigjaldamálið var, þar sem allur ágóðinn átti að renna til vegamála. Að auki telur maður ekki að venju að ríkið eigi að vera að stunda nýsköpun. Jú, til eru svipuð dæmi um skattlagningu á kílómetragjald erlendis en það hefur aldrei verið lagt á allan bílaflotann í landinu. Það hefur helst verið lagt á þungaflutningabifreiðar en ekki lagt á fyrirtæki eins og bílaleigur og hvað þá almenning. Ef við förum bara að greina skilvirknina við núverandi kerfi þá eru þar örfá félög, sem hægt er að telja á einni hendi, sem sjá um innheimtu þeirra olíugjalda sem ríkið leggur á í dag eða eldsneytisgjalda. Breytingin sem við erum að fara í, ef þetta verður, mun einfaldlega auka álag á bílaleigurnar. Þetta mun auka álag á almenning og þetta mun auka álagið á eftirlitsaðila. Þetta mun leiða til aukins kostnaðar hjá bílaleigunum í mannafla og í upplýsingatækni.

Mig langar að vitna í umsögn frá Bílaleigu Flugleiða. Þar er einmitt minnst á óskilvirknina sem er í kerfinu í dag: „Sem dæmi fékk Bílaleiga Flugleiða einn reikning uppá 17 milljónir króna fyrir kílómetragjald af einni bifreið. Það tók um einn mánuð að fá þennan reikning leiðréttan. […] Bílaleiga sem er með 20% markaðshlutdeild þyrfti þá að svara 57 fyrirspurnum á dag sem þarf að leysa með a.m.k. 1–2 stöðugildum.“

Í umsögninni sem Hertz sendi frá sér kom einnig fram að greiningin sem ríkið gerði á kostnaði sem myndi leggjast á ríkið sjálft hefði ekki verið gerð fyrir ferðaþjónustuna eina og sér. Ekki var gerð almennileg greining á þeim kostnaði sem mun leggjast á ferðaþjónustuna og er því mjög leiðinlegt að sjá að ríkið ætli bara að skella þessum kostnaði blint á fyrirtækin. Að auki má spyrja sig í stærra samhengi hlutanna, eftir þann mikla ólgusjó sem var í ferðaþjónustunni í kringum Covid-19 faraldurinn, hvort þetta séu þau skilaboð sem við viljum senda til ferðaþjónustunnar á nákvæmlega þessum tíma, þegar ferðaþjónustan vill ná ákveðnu jafnvægi og ná að byggja upp sín kerfi, endurnýja bílaflotann sem er með þeim elsta í Evrópu — þá leggjum við á hana aukinn kostnað og gerum það að auki með þriggja vikna fyrirvara. Ég get ekki ímyndað mér gleðina hjá upplýsingatæknifyrirtækjunum sem munu þurfa að fara í stór verkefni á skömmum tíma til að breyta þessu fyrirkomulagi. Ef við spyrjum okkur hvað hefði verið einfaldast og skilvirkast að gera í þessu máli þá hefði það bara verið að halda núverandi kerfi áfram af því að það virkar og það mun virka áfram í framtíðinni. Ef við leyfum bara tækninni að þróast eðlilega og eðlilegri neysluhegðun Íslendinga, sem myndu rafvæða bílaflotann innan eðlilegs tímaramma, þá hefði gamla kerfið, sem nú er verið að breyta, einfaldlega fasast út af sjálfu sér. Það þarf ekki að breyta neinu þar sem kílómetragjaldið er nú þegar komið á fyrir rafbílana. Enn og aftur: Af hverju erum við að gera eitthvað sem eykur ekki skilvirkni, stækkar báknið? En maður veit ekki við hverju er að búast þegar verið er að auka skatta á fólk og fyrirtæki í landinu. Höldum áfram að skoða reynsluna af núverandi kerfi og áhersluna sem þetta mun hafa á ferðaþjónustuna og bílaleigurnar. Í dag segja þær að þær séu að ná að innheimta u.þ.b. 75–90% af þeim gjöldum á kílómetragjaldinu. Þarna erum við því að tala um allt frá 10–25% aukakostnað sem mun falla beint á ferðaþjónustuna. Það er bara ein leið til þess að vega það upp og það er að fleyta kostnaðinum út í verðlagið sem mun náttúrlega gera samkeppnisstöðu Íslands enn verri og að sama skapi minnka fjárfestingargetu fyrirtækjanna til að endurnýja flota sinn.

Svo er það líka annað hvernig þessi breyting mun hafa áhrif á neysluhegðun ferðamannsins. Nú er það svo að útgjaldaleigan, eða það verð sem birtist á heimasíðu bílaleigufyrirtækjanna þegar ferðamaðurinn er að leita að bílum, mun einfaldlega fara upp og ég get ekki séð hvernig færustu markaðssnillingar okkar Íslendinga eiga að ná að útskýra fyrir ferðamanninum að þetta sé allt í lagi. Bílaleigubíllinn er kannski 30–40% dýrari hjá okkur. Það er ekkert mál, þú borgar minna með fullan tankinn. Ég sé það einfaldlega ekki fyrir mér hvernig okkar færustu snillingar eiga að gera þetta. Ef við setjum okkur í fótspor eðlilegs ferðamanns, sem við erum oft sjálf, þá skoðar hann flugið og skoðar hótelið og svo fer hann að spá hvað hann vilji gera hér á landi og hvernig hann komist á þá áfangastaði sem hann vill fara á. Þá fer hann einmitt að skoða bílaleigubílinn. Bara þetta gæti leitt til þess að það koma færri ferðamenn til landsins og fleiri fara til nágrannalanda okkar af því að við erum á alþjóðlegum samkeppnismarkaði um ferðamenn. Varan sem Ísland hefur upp á að bjóða er að vissu leyti einstök en Norðmenn og fleiri Norðurlandaþjóðir hafa gert stórsókn í sínum markaðsherferðum og hafa náð að kynna land og þjóð vel og standa þeir oftar en ekki betur en við hvað það varðar að laða að ferðamenn. Þá komum við aftur að því sem ég nefndi í byrjun: Erum við að fara að ná inn þeim skatttekjum sem áætlað er? Verður fjöldi ekinna kílómetra sá sami þegar samkeppnishæfni fyrirtækjanna fer niður? Til að kristalla þetta langaði mig, með leyfi forseta, að vitna í umsögn frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Þar segir:

„Helstu niðurstöður þjóðhagslíkans Hagrannsókna sf. í þessu sérstaka dæmi eru neikvæðar, það er lækkun í vergri landsframleiðslu, minni fjárfesting, minni útflutningstekjur og aukinn viðskiptahalli. Nánar tiltekið eru áhrifin á ársgrundvelli, miðað við verðlag í apríl 2025, lækkun í vergri landsframleiðslu um 2,7 milljarða króna, minni útflutningur um 4,1 milljarða króna og aukinn viðskiptahalli um 3,3 milljarða króna.“

Ég átta mig einfaldlega ekki á af hverju við erum að halda áfram með þetta mál þegar þetta eru niðurstöðurnar úr umsögnum frá ferðaþjónustunni. Þetta mun ekki bara hafa áhrif á ferðaþjónustuna. Þetta mun einnig hafa áhrif á unga og óvenjulega fólkið okkar, eins og ríkisstjórnin myndi vilja kalla það. Það kom fram í umsögn Félags íslenskra bifreiðaeigenda að þessi breyting myndi valda því að lítill og sparneytinn fjölskyldubíll, sem keyrir 20.000 km á ári, myndi kosta 50.000 kr. aukalega í rekstri á ári. Þetta er bara beinn aukinn skattur á það fólk í landinu sem þarf hvað síst á aukinni skattbyrði að halda. Því hverjir eru að kaupa þessa bíla? Jú, það eru oftast fyrstu íbúðakaupendur og fjölskyldur sem vilja kaupa eyðslulitla og hagkvæma bíla. Einnig kemur fram í nefndaráliti meiri hluta að þetta vegi hve þyngst að meðaltali á höfuðborgina. En mig langar líka að velta því fyrir mér hvernig áhrif þetta hefur á neysluhegðun fólks sem veit að það mun kosta meira að keyra núna. Þá er ég sérstaklega að tala um þá sem búa í nágrenni við höfuðborgarsvæðið, sem hafa ákveðið að flýja höfuðborgarsvæðið og búa þá í nágrannabyggðakjörnum þar sem íbúðaverð er oftast aðeins lægra. Hvaða áhrif mun þetta hafa á neysluhegðun þess fólks? Þá þarf allt í einu að reikna það inn í dæmið: Heyrðu, íbúðaverðið er lægra en að sama skapi er hærri kostnaður að fara að detta á mig. Flækjustig í rekstri heimila eykst líka af því að núna þarf að taka frá þann pening sem greiða á í lok hvers mánaðar eða við skoðun, sem getur oft verið mörgum árum eftir að fólk kaupir bíl, sérstaklega ef þetta eru rafbílarnir. Peningurinn er greiddur strax við dæluna en peningurinn sem er greiddur þegar bíllinn fer í skoðun hjá eftirlitsaðilum kemur aðeins seinna. Varðandi landsbyggðina þá mun þetta ekki verða góð breyting fyrir atvinnulífið þar. Það liggur í augum uppi. Þau fyrirtæki sem þurfa að flytja vörur í fraktflugi og líka þau fyrirtæki sem þurfa að flytja vörur frá höfuðborgarsvæðinu út á fjarlæga byggðakjarna munu borga meira. Þessu þarf auðvitað að fleyta út í verðlagið og það eru hvort tveggja íbúar í byggðakjörnum á landsbyggðinni og líka þau fyrirtæki sem starfa þar sem þetta lendir á því að vörur og þjónusta munu verða dýrari. Ég vil einnig nefna að nýlega hampaði hæstv. ríkisstjórn sér mjög fyrir að hafa aukið ferðasjóð íþróttafélaganna um 100 millj. kr. til þess að mæta þeim aukna ferðakostnaði sem leggst einmitt á fólk á landsbyggðinni þegar það þarf að sækja íþróttamót á höfuðborgarsvæðinu. Nú virðist einmitt eins og einhver einföld tilfærsla sé að fara að eiga sér stað. Kostnaður eykst við þær rútuferðir sem íþróttafélögin eru að senda krakkana sína í og sækja til baka í ferðasjóðinn, en umsóknir í sjóðinn námu 750 millj. kr. á seinasta ári. Þá mun nýtt frumvarp um kílómetragjaldið bara auka kostnað við íþróttaþátttöku fólks á landsbyggðinni, sem snertir lýðheilsu, þegar upp er staðið.

Ég legg til að þetta mál verði sent aftur til ríkisstjórnarinnar til frekari vinnslu, einfaldlega til þess að leggja málið af eða seinka því um eitt ár og vinna betri útfærslu. Ríkið á ekki að vera að stækka báknið. Það á ekki að auka skattbyrði, það á ekki að auka flækjustig, það á ekki að skerða samkeppnishæfni og ekki auka útgjöld á ungar fjölskyldur. Með því að halda í gamla kerfið spörum við almenningi skattfé, höldum uppi einföldu og skilvirku kerfi og flækjum lífið ekki óþarflega fyrir almenningi þar til tæknin mun bjóða upp á skilvirkara og betra kerfi.