157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

staðan í fangelsismálum.

[10:37]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra svarið og finnst dapurlegt að heyra að hér sé farið rangt með því að kostnaðaráætlun í tíð fyrri ríkisstjórnar við nýtt öryggisfangelsi var upp á 17 milljarða en ekki 30 milljarða. En þegar ég gegndi embætti dómsmálaráðherra lagði ég mikla áherslu á að bæta stöðu fangelsismála á Íslandi. Við hófum undirbúning að fjölgun rýma fyrir konur í opnu fangelsi á Sogni, lögðum grunn að sértækum meðferðarúrræðum fyrir kvenfanga og unnum með fangelsisyfirvöldum að því að efla geðheilbrigðisþjónustu og áfallameðferð fyrir þá sem hafa orðið fyrir ofbeldi og misnotkun og glíma við fíkn.

Þá vil ég sérstaklega spyrja um stöðu heildarendurskoðunar á fullnustukerfinu sem var unnin í ráðuneytinu og liggur nú fyrir í skýrsluformi. Hvers vegna hefur sú skýrsla ekki verið birt og kynnt fyrir Alþingi og almenningi? Hæstv. dómsmálaráðherra hefur ítrekað sagt að ríkisstjórnin sé samstiga og að fangelsismálin séu í forgangi. Þess vegna er eðlilegt að spyrja: Hver er staðan á fjölgun rýma fyrir konur á Sogni? Hvað hefur verið gert til að koma á fót sértækum meðferðargangi fyrir kvenfanga? (Forseti hringir.) Og hvernig hefur verið brugðist við þörf fyrir aukna sérfræðiaðstoð og geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsanna? Telur ráðherra að framfarir síðustu missera (Forseti hringir.) endurspegli þau orð hennar sem voru höfð uppi um að gera enn betur en fyrri ríkisstjórn?