staðan í fangelsismálum.
Frú forseti. Þetta er endurtekið stef hjá hv. þingmanni um skýrslurnar sem liggja fyrir í ráðuneyti dómsmála, um frumvörpin sem liggja fyrir í ráðuneyti dómsmála, að öll þau frumvörp fimm sem ég er að leggja fyrir í útlendingamálum séu í reynd frá hv. þingmanni komin. Staðreyndin er þessi: Skúffurnar í dómsmálaráðuneytinu voru tómar. (GHaf: Það er ekki rétt.) Þær voru tómar og ég hefði glöð lagt fram þessi frumvörp hefðu þau verið til. Skúffurnar í dómsmálaráðuneytinu voru tómar. Ég hef setið í 11 mánuði. Stóra-Hraun er á dagskrá. Við erum í kraftmiklum aðgerðum í fangelsismálum og útlendingamálum. Ég er ekki í yfirboði í pólitískum yfirlýsingum. Þetta eru verkefni sem taka tíma en ég er staðráðinn í því að fara í þau verk sem þarf að vinna. Ég þakka fyrrverandi dómsmálaráðherra fyrir áhuga hennar á málinu. Sannarlega tók hún einhver skref en þessar skýrslur og þessi frumvörp lágu einfaldlega ekki fyrir í dómsmálaráðuneytinu.