157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

ákvarðanir ráðherra ríkisstjórnarinnar.

[10:40]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég vildi eiga orðastað við einn af oddvitum ríkisstjórnarinnar. Undanfarnar vikur höfum við orðið vitni að röð óheppilegra, getum við kallað, ákvarðana einstakra ráðherra ríkisstjórnarinnar. Má þar nefna framlagningu samgönguáætlunar og allar þær yfirlýsingar sem þar voru, en síðan kom í ljós að innviðaráðherra hafði ekki lesið til fullnustu þær skýrslur sem lágu til grundvallar. Má líka nefna ákvarðanir mennta- og barnamálaráðherra sem fer um eins og stormur á jólanótt og kippir mönnum úr embætti, að því er virðist á grundvelli ákvarðana sem ríkisstjórnin á eftir að taka og útfæra og ekki liggur nein lagastoð fyrir. Minnir þetta nú á framgöngu félagsmálaráðherra á fyrstu dögum ríkisstjórnarinnar sem ekki ætlaði að skipa í stjórnir vegna þess að hún ætlaði að leggja þær niður seinna. Framkvæmdarvaldið getur auðvitað ekki framkvæmt það sem þingið hefur ekki samþykkt. Á síðasta kjörtímabili fór Viðreisn oft mikinn í gagnrýni á ríkisstjórnina og talaði mjög oft um fúsk og óvönduð vinnubrögð. Því langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hún sé sammála forsætisráðherra sem virtist samþykkja allar þessar aðgerðir og vera meðvirk í ábyrgð bæði innviðaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Var hæstv. utanríkisráðherra upplýst um þessar aðgerðir áður en þær komu fram? Myndi hæstv. utanríkisráðherra, ef hún myndi spóla aftur í tíma og meta þessar ákvarðanir, ekki kalla þetta fúsk, svo notuð sé orðræða Viðreisnar?