157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

ákvarðanir ráðherra ríkisstjórnarinnar.

[10:42]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að eyða miklum tíma hér í að ræða síðustu ríkisstjórn. Afstaða okkar í Viðreisn var alveg skýr. Við söknuðum þess að það væru teknar ákvarðanir, að við héldum aðeins áfram, að það yrði farið í að fjölga lögreglumönnum, að það væri verið að fara í það að auka öryggi og stöðugleika á heimilum landsins og úti í samfélaginu, að það yrði farið í markvissar aðgerðir til að lækka verðbólgu. Allt er þetta núna, bæði vextir og verðbólga, á niðurleið. Við erum að fara í það á þessu kjörtímabili að byrja að bora göng, sem var ekki á síðasta kjörtímabili. Við höfum farið í það að einfalda regluverk, ekki síst með tilliti til þess að við getum farið í orkuöflun. Það var ekki byrjað á nýjum virkjunum eða á nýjum orkuöflunarmannvirkjum á síðasta kjörtímabili. Er það fúsk eða ekki? Við orðuðum það þá og það má alveg örugglega orða það þannig.

Ég ætla hins vegar að reyna að svara líka því sem mér finnst skipta máli og mér finnst það ekki maklegt af fyrrverandi innviðaráðherra að koma og snúa út úr orðum ráðherra innviðamála um ákveðna skýrslu þegar fyrrverandi innviðaráðherra veit það vel að samgönguáætlun er undirbyggð af mörgum þáttum, mörgum skýrslum. Ef ráðherrann vill staldra við nákvæmlega þessa skýrslu þá vil ég, einmitt af því að hann hlýtur að hafa lesið þessa skýrslu, sérstaklega vekja athygli á einum þætti í skýrslunni sem dregur fram hinn mikla vaxtakostnað sem íslenska ríkið hefur umfram aðrar þjóðir, að vaxtakostnaður ríkisins, fjármagnsbyrði eða fjármagnskostnaður ríkisins fer í eitthvað annað heldur en framkvæmdir. Mér fannst það athyglisverð ábending hjá skýrsluhöfundum að minna okkur á hvað krónan er okkur dýr, að við getum farið hægar í sakirnar og í framkvæmdir af því að við erum að borga það mikið í vaxtakostnað — talandi um skýrslur og innihald. Ég kem að hinum atriðunum í mínu seinna svari.