157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

ákvarðanir ráðherra ríkisstjórnarinnar.

[10:45]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það með hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni að þingið skiptir svo miklu máli fyrir okkur hér, þetta elsta löggjafarþing í heimi. Það á að veita framkvæmdarvaldinu aðhald og það verður að gera það. Ég held að það sé þannig hverju sinni, hverjir sem það eru sem eru í stjórnarandstöðu hverju sinni, að þeir eru oftast nær af heilindum að veita ríkisstjórn hvers tíma aðhald. Það skiptir máli, ég vil draga það fram, og þess vegna þakka ég þessa fyrirspurn. Ein spurningin var m.a. sú hvort ég hefði vitað af ákvörðun hæstv. menntamálaráðherra og ég fékk að vita það eftir að sú ákvörðun var tekin. Við erum upplýst um ýmislegt. Við erum hins vegar ekki að fara mikið inn á verksvið hvert annars, enda er ríkisstjórnin ekki fjölskipað stjórnvald. En það skiptir máli innan þessarar ríkisstjórnar að það sé talað saman. Stundum er ágreiningur, stundum ekki. En við komumst alltaf að sameiginlegri niðurstöðu og það skiptir máli fyrir þjóðina að vita að hér er verkstjórn í gangi.