málefni hælisleitenda.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hún nefnir að umsóknum um alþjóðlega vernd hafi farið fækkandi og það er rétt. Það voru stigin skref á síðasta þingi sem höfðu áhrif í þá veruna. En við sjáum það líka í íslensku samhengi, þegar við horfum á fólksfjölda á Íslandi, að sveiflurnar hér á landi eru meiri eðli málsins samkvæmt. Hv. þingmaður nefnir einn mánuð sérstaklega en ég myndi halda mig við það að horfa á málið með þeim hætti — af því að við horfum á árið 2025, þá er það rétt sem hv. þingmaður segir að fjöldi umsókna um alþjóðlega vernd á Íslandi er lægri en árið 2024. Umsóknir árið 2025 eru langtum færri en árin 2023 og 2022, þannig að ég ætla nú kannski ekki að fara í það að vera að horfa á einstaka mánuði en þykist skilja spurningu þingmannsins sem svo hvort þarna sé einhver upptröppun að verða sem þurfi að hafa áhyggjur af. Ég er nýkomin af fundi í Strassburg, kom þaðan í gærkvöld og átti þar í góðu samtali við ráðherra Norðurlandanna í útlendingamálum og auðvitað er það alltaf markmið allra stjórnvalda að horfa á tölulega þróun í þessum efnum. Stóra sagan þar er hins vegar þessi: Umsóknum á Íslandi fer fækkandi. Langstærsti hlutinn á Íslandi í dag eru Úkraínumenn. Íslensk stjórnvöld hafa rétt eins og stjórnvöld alls staðar annars staðar á Norðurlöndunum og í Evrópu verið mjög markviss í sínum stuðningi hvað Úkraínu varðar og ég vona að enn sé samstaða um það. Langstærsti hlutinn er frá Úkraínu. Ég er ekki upptekin af því hvað er að gerast í einum mánuði eða tveimur en horfi á heildarsöguna um það að umsóknum fer fækkandi. Það gefur okkur um leið færi til þess, af því að mér finnst það líka skipta máli, að taka á móti fólki með þeim hætti að það raunverulega fái tækifæri til að spjara sig hér á landi, fái raunverulega tækifæri til atvinnu og þátttöku í samfélaginu. (Forseti hringir.) En stóra myndin er þessi: Umsóknum fer fækkandi.