aðgerðir og stefna stjórnvalda í utanríkismálum.
Virðulegi forseti. Þessi styrkveiting er í samræmi við ákvörðun um framlög til upplýsinga varðandi aðdraganda að þjóðaratkvæðagreiðslunni og það er einfaldlega þannig að utanríkisráðuneytið er ekki að veita styrki til óstofnaðra samtaka. Það er ekki þannig. (Gripið fram í.) Við þurfum að koma þessu út. Það liggur fyrir að hér er Evrópuhreyfing starfandi, síðan er Heimssýn starfandi og það er bara eðlilegt að í þessu skrefi sé verið að veita þeim þetta tæki til að draga fram sinn málstað og ég vona að það verði uppbyggilegur og góður ferill. Ég verð hins vegar að segja að það er þungt í mér varðandi fyrri fyrirspurn hv. þingmanns og það sem kemur fram af hálfu Miðflokksins. Það er verið að brigsla mér um það að erlendar stofnanir eða erlend ríki hafi einhver áhrif á utanríkisstefnu Íslands. Hvers konar della er þetta? Hvað er verið að væna mann hér um? Enn og aftur segi ég: Mér finnst hann merkilegur, (Forseti hringir.) þessi undirliggjandi ótti Miðflokksins (Gripið fram í.) við þjóðina sjálfa. Það er þjóðin sjálf sem tekur ákvörðun um næsta skref. Þetta er gríðarlega mikilvæg ákvörðun sem þjóðin fær að taka (Forseti hringir.) og hún mun standa undir því. Ég óttast ekki þjóðina eins og Miðflokkurinn.