157. löggjafarþing — 45. fundur, 11. des. 2025.
Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
235. mál
Mig langaði rétt að koma hingað upp og taka undir orð hv. þm. Vilhjálms Árnasonar en fyrst og fremst að flytja bæði nefndinni, sem vann þetta mál hratt og vel, og síðan þingheimi, af því að ég geri ráð fyrir að málið fái góða afgreiðslu hér — þetta er eitt af þessum málum sem er lítið en það er risastórt fyrir þá sem málið varðar. Ég er bara þakklát fyrir það og ég veit að þetta eru skýr og góð skilaboð til íbúa Grindavíkur.