verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.
Virðulegi forseti. Þetta er eitt af þessum góðu dæmum um hvernig við vinnum saman í þingsal að sameiginlegum hagsmunum, bæði fyrir nútíðina en ekki síst fyrir framtíðina. Það liggur svolítið á þessu og ég vil þakka utanríkismálanefnd sérstaklega fyrir að hafa tekið hratt og vel á þessu máli, enda eru allir aðilar sem hafa komið að málinu samþykkir því. Málið er auðvitað forsenda fullgildingar samningsins af hálfu Íslands og forsenda þess að Ísland geti haft bein áhrif á skyldur ríkja til að vernda og varðveita umhverfi hafsins samkvæmt samningnum um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja. Þetta er ekki mál sem lætur mikið yfir sér en skiptir máli að við sýnum framsýni og það erum við að gera. Við erum að passa upp á íslenska hagsmuni til skemmri og lengri tíma og ég vil sérstaklega þakka fólkinu í utanríkismálanefnd fyrir vinnuna.