157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

Skýrsla starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd.

[11:30]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir að hafa frumkvæði að þessari umræðu hér um útlendingamál og þakka einnig góða yfirferð hæstv. ráðherra. Umrædd skýrsla, Ísland í örum vexti, og svör við fyrirspurn hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur sýna berlega að málaflokkurinn hefur farið algjörlega úr böndum, m.a. örorkugreiðslur til erlendra ríkisborgara. Fram kemur að frá árinu 2013 hefur fjöldi erlendra ríkisborgara á endurhæfingarlífeyri meira en þrettánfaldast, úr 111 í 1464. Það er greinilegt, frú forseti, að í valdatíð Sjálfstæðisflokksins fór málaflokkurinn algjörlega úr böndum og í algera vitleysu. Því er undarlegt að hlýða hér á hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, koma fram eins og hún og flokkur hennar beri enga ábyrgð á því ástandi sem núverandi ríkisstjórn er svo sannarlega að takast á við. Hæstv. ráðherra er með fimm frumvörp á þingmálaskrá sem tengjast útlendingamálum. Þá eru fleiri ráðherrar með mál sem snerta málaflokkinn, má þar nefna leigubílamálið og frumvarp hæstv. ráðherra háskólamála um álagningu skólagjalda á háskólanemendur sem koma utan EES.

Í þessari umræðu er rétt að hafa það í huga að við erum hér að færa reglur í átt við það sem er á öðrum Norðurlöndum. En hvað eru hin Norðurlöndin að gera? Þau eru að þrengja sínar reglur enn frekar. Danir eru m.a. að taka upp það að afturkalla ríkisborgararétt hjá fólki sem hefur svo sannarlega ekki gert Dönum gott og ég held að við verðum við þá endurskoðun sem við erum að fara í og yfirferð hér í þinginu að hafa það í huga að við þurfum verulega að taka á í þessum málaflokki.