Skýrsla starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd.
Virðulegur forseti. Um hvað erum við að tala hérna í dag? Jú, þessa skýrslu sem ég held að hafi verið góð skýrsla og hafi varpað ljósi á margt. Hún er meira og minna í samræmi við það sem var unnið á síðasta kjörtímabili, 22 aðgerðir sem þurfti að framkvæma til þess að ná tökum á því sem hafði sannarlega farið úr böndunum. Fyrst og fremst komu hingað mjög margir Úkraínumenn sem við tókum opnum örmum en einhverra hluta vegna tókum við líka á móti mjög stórum hópum af Venesúelafólki. Á sama tíma var hér mikill hagvöxtur og fólk kom hingað til að vinna og við höfum séð ný fyrirtæki spretta upp sem hafa þurft á sérfræðingum að halda sem eru utan EES. Ætlum við að takmarka aðgengi slíkra fyrirtækja að þeim og takmarka vöxt á Íslandi? Ætlum við að láta þau fyrirtæki færa sig eitthvert annað? Um hvað erum við að tala? Jú, við erum að tala um að fara í þessar aðgerðir sem voru samþykktar á síðasta kjörtímabili um að aðlaga okkar kerfi varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd að því fyrirkomulagi sem er á Norðurlöndunum. Það er líka rétt að á Norðurlöndunum eru menn að herða, þannig að við verðum að vera stöðugt á tánum til þess. En á sama tíma er íslenskt samfélag ekkert flóknara eða öðruvísi en önnur samfélög nema við erum færri þannig að hlutfallið er stærra og áskorunin snýst um það hvernig við komum fólkinu fyrir í landinu, að það aðlagist Íslandi og íslenskri menningu. Það er áskorunin. Þar er íslenskan lykilatriði og það hefur ekki verið minnst á hana hér. Meiri hluti fjárlaganefndar sá að sér fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og setti þó fjármuni í þann málaflokk upp á 286 milljónir. Við í Framsókn sögðum: Það er ekki nóg. Í þeim aðgerðapakka sem við vorum að leggja áherslu á í janúar 2023 var stór hluti fólginn í því að kenna fólki íslensku, gera kröfu á þá sem koma hingað að þeir læri íslensku. (Forseti hringir.) Þannig höldum við betur utan um þetta. — Ég ætla að koma inn á aðra þætti málsins hérna í seinni lotu.