157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

Skýrsla starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd.

[11:40]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Ráðherrann boðar stefnubreytingu frá stefnu síðustu ríkisstjórnar. Það hefur engin stefnubreyting átt sér stað hjá Sjálfstæðisflokknum. Hann hefur verið með skýra stefnu í útlendingamálum. Við komum í gegn málum sem höfðu mikið að gera með þróunina á síðasta kjörtímabili en við gerðum það með herkjum og það er ágætt að rifja upp hvernig andstaða Viðreisnar og Samfylkingarinnar var þá hér í þinginu. Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, kynnti þá stefnu flokksins í útlendingamálum og fór ekki leynt með andstöðu sína við að löggjöfin yrði hert til að setja skorður við streymi fólks til landsins. Stóra fréttin á þessu kjörtímabili, virðulegur forseti, er auðvitað stefnubreyting Viðreisnar og Samfylkingarinnar í útlendingamálum og það er ekki annað hægt en að fagna þeirri stefnubreytingu. Hún er auðvitað popúlismi af því að þau töldu að þau hefðu eitthvað út úr því að vera á móti þessu þegar við vorum að koma í gegn breytingum sem skiptu miklu máli. Við snerum með herkjum við þeirri stefnu sem hafði verið. Stjórnarandstaðan á þeim tíma lagðist á sveif með Vinstri grænum, sem voru með okkur í ríkisstjórn, til að hjálpa til við að draga úr þeim breytingum sem við vildum gera. Þeir voru í öflugri stjórnarandstöðu í þessu máli. Það voru heitar umræður hér í þinginu. Aðstaða núverandi ráðherra er allt önnur. Hún hefur mikinn stuðning hér hjá stjórnarandstöðunni við að boða breytingar. Hún lofar miklu en hún er ekki að efna þetta. Hvar erum við að sjá stóru skrefin stigin í þessum málaflokki, sem setja alvöru hömlur á þessa þróun? Við fögnum stefnubreytingunni, stóru fréttunum á þessu kjörtímabili, að þessir flokkar hafi loksins séð ljósið, séð vitleysuna sem var hér í gangi, séð þróunina sem við vorum búnir að reyna að berjast gegn í nokkur ár, Sjálfstæðismenn innan ríkisstjórnar. Stuðningur stjórnarandstöðunnar, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, vó þar mikið í að við kæmum ekki málum eins mikið áfram og við vildum. (Forseti hringir.) Ég hvet ráðherrann nú til að efna öll fyrirheitin sem hún er að gefa og koma hér inn með mál sem skipta máli í þessum útlendingamálum.