157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

Skýrsla starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd.

[11:43]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda og einnig ráðherra fyrir þátttöku sína í þessari umræðu. Ég vil líka taka það skýrt fram í upphafi míns máls að ég hef ekki heyrt neinn stjórnmálaflokk á Íslandi tala gegn því að hingað flytjist fólk sem tekur þátt í atvinnulífinu, skapar verðmæti og verður hluti af íslensku samfélagi. Ég hef ekki heyrt neinn flokk tala gegn því að fólksfjölgun þurfi að vera sjálfbær, að innviðir, húsnæði, menntakerfið og heilbrigðiskerfið standi undir vextinum. Ég hef ekki heyrt neinn flokk mæla með því að við höfum veikleika í regluverki sem ýta undir misnotkun, óöryggi eða ósanngjarnar aðstæður. Það eru engin átök um þessi grundvallarsjónarmið, svo um hvað snýst þessi umræða í raun og veru? Hún snýst að mínu mati um það að við þurfum að taka höndum saman við að uppfæra regluverkið og stjórnsýsluna til að koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu, verja réttindi fólks og tryggja að vöxtur samfélagsins sé ekki tilviljanakenndur heldur sjálfbær og heyri undir skýrt regluverk. Sannleikurinn er sá að á síðustu árum hafa íslensk stjórnvöld ekki staðið sig í að uppfæra regluverk í takt við Norðurlöndin og þá veikleika sem eru í íslenska dvalarleyfiskerfinu. Það hefur ýtt undir stéttaskiptingu og fátækt hér á landi á sama tíma og ríkið hefur ekki fylgt eftir með innviðum, húsnæði, menntun og tungumálanámi. Það er ekki ábyrg stjórnmálastefna, hvorki gagnvart íslensku samfélagi né fólkinu sem hingað kemur. Verkefnið fram undan er því skýrt og ég styð ráðherra og ríkisstjórnina í því að samræma regluverk, laga misræmi milli leyfisflokka, styrkja stjórnsýsluna og eftirlit með brotum á vinnumarkaði. Ef við gerum þetta af yfirvegun, ef við samræmum reglur og styrkjum innviði á sama tíma er sjálfbær fjölgun fólks ekki ógn heldur tækifæri til vaxtar og velmegunar fyrir samfélagið allt. En ef við sitjum áfram með veika stjórnsýslu og innviði þá eru það einmitt veikleikarnir sem skapa óöryggi í samfélaginu.