Skýrsla starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd.
Frú forseti. Ég þakka þingheimi fyrir umræðuna. Hér var spurt að því af hálfu þingmanns Sjálfstæðisflokksins hvort á ferðinni væri bútasaumur þegar ég legg fram fimm frumvörp um útlendingamál. Hér er um heildarendurskoðun að ræða. Mig langar til að nefna í þessu samhengi að hennar flokkur rýmkaði einmitt dvalarleyfiskerfið án nokkurra greininga. Við erum að byggja aðgerðir og stefnu á greiningu og gögnum. Ég bendi líka á að Sjálfstæðisflokkurinn sagði í síðustu kosningabaráttu að þau hefðu náð tökum á útlendingamálum, kosningabaráttan gekk út á það. Fyrst sprengdu þau ríkisstjórnina vegna útlendingamála, í kosningabaráttunni voru þau með góð tök á þeim og núna hefur tónninn breyst í þriðja sinn. Mér finnst áhugavert að heyra að málshefjandi, hv. þm. Snorri Másson, skyldi ekki nefna Úkraínumenn þegar hann talaði um alþjóðlega vernd, stærsta hópinn. Það er þá ný utanríkispólitísk afstaða í stríðinu sem Úkraínumenn standa í. Hér er einfaldlega grundvallarágreiningur flokka í millum hvað þetta varðar. Hér hafa hv. þingmenn rætt um örugg þriðju ríki sem er skilgreining í Schengen-gerð sem Ísland mun innleiða samhliða ríkjum Evrópu og ríkisstjórnin fylgist vel með þeirri umræðu en ég tek fram að ekkert ríki sendir nú til svokallaðs öruggs þriðja ríkis sem umsækjandi tengist ekki.
Varðandi það sem við viljum skoða og erum að vinna þá þurfa reglur um fjölskyldusameiningar að vera sambærilegar við það sem annars staðar þekkist og frávikin eru of tíð hér á landi. Það eru líka kröfur um framfærslu, húsnæði, samfélagsþátttöku, tengslamat og sitthvað annað, takmarkaðri þættir á Íslandi en annars staðar og þessu verður breytt. Aðgerðirnar 25 verða útfærðar í tveimur lagafrumvörpum, haust 2025 og vor 2026, og reglugerðarbreytingum.
Ég ætla ekki að standa hér og tala bara um vandamál, það eru lausnir og það eru líka tækifæri og þau gleymast, finnst mér, hjá Miðflokknum. Ég ítreka stuðning ríkisstjórnarinnar við EES-samninginn. Afnám hans er árás á íslenskt atvinnulíf, árás á íslenskt efnahagslíf og þingmaðurinn talar um það sem hagsmuni Íslendinga — það eru hagsmunir Íslands að fá að vera með. (Forseti hringir.) Ætlar Miðflokkurinn að segja sig úr EES-samningnum og kalla heim þá 50.000 Íslendinga sem eru á EES-svæðinu (Gripið fram í.) á grundvelli vinnu, náms og allra þeirra tækifæra sem EES-samningurinn býður upp á? (Forseti hringir.) Þú slítur ekki samningnum bara í aðra áttina. Endurskoðun kallar líka á þetta, að við köllum heim alla þá Íslendinga sem vinna og starfa á EES-svæðinu.