hafnalög.
Virðulegur forseti. Í gær tók ég þetta mál til umfjöllunar í nafni umhverfis- og samgöngunefndar sem flytur þetta mál. Sú leið var valin vegna þess að þetta þurfti að komast í gegn fyrir áramót. Málið er tiltölulega einfalt. Það snýr að tvennu. Annars vegar að það skortir leiðbeiningar ráðuneytis til eiganda hafna um afmörkun hafnasvæða sem ráðuneytið átti að vera búið að senda en er ekki tilbúið og það er verið að óska eftir því að sá frestur verði veittur í eitt ár til viðbótar. En síðan er hitt að Hafnabótasjóður hefur engar heimildir til fjárfestinga nema hafa samgönguáætlun á bak við sig. Hún er ekki til staðar og þess vegna þarf að grípa til annarra leiða til að fjármagna Hafnabótasjóð með bráðabirgðaákvæði. Ég fékk spurningar hér í andsvörum um hugsanlegan kostnað sem af þessu gæti hlotist. Ég hafði ekki þær upplýsingar á takteinum í gær en ákvað að leita liðsinnis fólks sem hefði meiri þekkingu á því en ég. Ég fékk þær upplýsingar að í fjárlögum væri þetta að finna. Þar stendur, með leyfi forseta, að í fjárlagafrumvarpi 2026 komi fjárheimildin fram á bls. 357. Hún er 1.592 millj. kr. fyrir árið 2026.
Í greinargerð frumvarpsins segir:
„Áfram unnið að uppbyggingu hafnarmannvirkja. Meðal helstu verkefna eru endurbygging og endurbætur hafna í Bolungarvík, á Húsavík, Sauðárkróki og Seyðisfirði.“
Þetta eru kannski stóru verkefnin í fjárlagafrumvarpinu sem áætlað er að verði farið í á árinu 2026. Með þessu er verið að skaffa Hafnabótasjóði fjármagn til að geta ráðist í þessar framkvæmdir.
Ég held, virðulegi forseti, að ég þurfi ekki að tjá mig frekar um þetta mál en þær upplýsingar sem beðið var um í andsvörum í gær liggja alla vega í svari mínu hér.