157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[12:10]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætla að leggja nokkur orð í belg varðandi þennan nýja skatt, kílómetraskattinn, þar sem er lagður skattur á hvern ekinn kílómetra allra bifreiða. Svona í upphafi lýsi ég því yfir að ég er alfarið á móti þessum skatti, ég er alfarið á móti þessari breytingu. Þetta er klætt í þann búning að hér sé um breytingu að ræða, það sé verið að færa gjaldtökuna úr sölu á bensínlítra eða dísillítra yfir í ekna kílómetra en samt sem áður er um hækkun að ræða. Hvernig sem á þetta er litið er verið að hækka skatta á bifreiðaeigendur um 3,3 milljarða áætlað, þannig að hérna er um skattahækkun að ræða á þá sem eiga bifreiðar og nota þær.

Það er hægt að fara mörgum orðum um þennan nýja skatt, flækjustigið sem þetta kallar á, innheimtuaðferðirnar, hvaða áhrif þetta hefur á akstur hér innan lands og á ferðaþjónustuna, hvernig við Íslendingar munum taka á því og hvaða áhrif þetta hefur á komu ferðamanna og ekki síst ferðir þeirra um landið. Að hverfa frá tiltölulega einföldu kerfi, sem er að þú kaupir bensín á bifreið þína, greiðir við dæluna og ekur svo þangað sem þig lystir, yfir í það að fylgst sé með því nákvæmlega hvað þú keyrir mikið — og það þarf að skrá og það þarf að hafa eftirlit með því og það þarf að innheimta það sérstaklega eftir á, áætla, leiðrétta, enduráætla og greiða síðan eftir á og ef þú greiðir ekki þarf að sjálfsögðu að innheimta það með öllum þeim ráðum og afli sem ríkið hefur og kostnaðinum sem því fylgir — er að mínu mati alveg mögnuð uppástunga. Það er alveg mögnuð uppástunga að gera þetta flókið. Fyrri ríkisstjórn og núverandi ríkisstjórn hafa talað um það sí og æ að einfalda kerfið, að einfalda regluverkið, eins og það heitir á íslensku hérna í þingsal. Þetta er auðvitað ekki einföldun á regluverki. Hérna er verið að gera innheimtu, sem í dag er mjög einföld, gæti varla verið einfaldari, mjög flókna, kostnaðarsama og tímafreka, bæði fyrir ríkisvaldið sem er að innheimta og líka fyrir gjaldendur, ég tala nú ekki um ferðaþjónustuaðila sem þurfa að gæta að því að gjaldið sé innheimt og greitt til ríkisins jafnvel og yfirleitt eftir á.

Það er alveg ótrúlegt að við séum að horfa á þetta hjá ríkisstjórn sem gefur sig út fyrir að ætla að einfalda regluverk. Þetta er beinlínis hlægilegt, frú forseti, það er eiginlega besta lýsingin á þessu. Þetta er hlægilegt og maður getur ekki annað en brosað. Við erum að ganga inn í þvílíka flækju á innheimtu. Vörubifreiðastjórar sem hafa hringt í mig, síðast í morgun talaði ég við tvo, lýsa undanskotum sem voru fræg hér fyrir 30 árum þegar þessar bifreiðar þurftu að greiða eftir mæli. Þá voru snillingar sem kunnu ýmis ráð til að skjóta sér undan greiðslu þessa skatts, höfðu ráð undir rifi hverju, ef svo má segja. Auðvitað eru menn hræddir við það. Þeir hafa lýst því yfir við mig að þeir séu hræddir við það að einhverjir nýti sér einhverja tækni eða aðferðir til að skrúfa þessa mæla einhvern veginn niður eða fari í tölvu og geri það þar. Þetta veikir líka samkeppni. Auðvitað veikir það samkeppni; þú ert heiðarlegur bílstjóri sem vilt greiða þína skatta og skyldur en svo eru einhverjir aðrir náungar, kumpánar, sem eru að tölvufæra þetta eitthvað niður og greiða þar af leiðandi ekki þennan skatt. Það er verið að bjóða hættunni heim á undanskotum, frú forseti. Einhver sagði að það yrðu 66 leiðir til að breyta þessum kílómetramælum, 66. Ég hef ekki hugmynd um hvort það sé rétt eða rangt en þeir fullyrða að það sé einfalt, hvað sem er til í því.

Svo eru það leiðréttingarnar á þessum skatti. Segjum sem svo að ég sendi ekki inn kílómetrastöðuna hjá mér í einhvern tíma. Þá fæ ég áætlun og hún er eins há og hægt er þannig að menn hafi nú allan fyrirvara á því að ég muni greiða þennan skatt fyllilega. Síðan drattast viðkomandi í álestur og þá kemur í ljós að hann hefur borgað meira en hann hefur ekið. Það þarf að leiðrétta það, senda inn leiðréttingu. Ríkið þarf að endurgreiða honum og miðað við nýjustu frumvarpsbreytingar í öðrum lagabálki, þar sem ríkinu verður í einhverjum tilvikum heimilað að endurgreiða ekki nema um verulega hagsmuni sé að ræða, þá sjáum við flækjustigið sem getur orðið. En auðvitað er þetta vinna. Það þarf eitthvert fólk í stjórnsýslunni að hamra þetta inn í tölvu, senda einhver bréf, hvort sem er með rafrænum hætti eða ekki, og fólk þarf að fá endurgreiðslu eða borga meira. Og ef þetta er mánaðarlega, sem það á að vera, er þetta náttúrlega bara leiðréttingarsúpa í einhverjum tilvikum. Við erum að fara inn í ógurlegt flækjustig í kerfinu fyrir bifreiðaeigendur og fyrir kerfið ekki síst. Ég sá það í umsögn frá einni bílaleigu að það er áætlað, og ég held að það sé eiginlega viðurkennt, að kostnaðurinn við þetta nýja kerfi verði allt að 1,5 milljarðar á ári.

Er ekki betur heima setið en af stað farið, frú forseti? Hafa menn kjark til að bíða með þessa stórkostlegu uppfinningu, sem er öfugmæli úr mínum munni núna, sem við erum að horfa á hér? Ég veit ekki hversu margar krónur, 1 eða 2 eða 3 kr. af núverandi bensínverði myndu greiða þessa skattahækkun. Hversu margar krónur væru það? 1 eða 2 kr. Einhverjir segja að það séu 3 eða 4 en ókei, látum það vera. Hvað eru margir að borga það? Hvað eru margir að greiða ríkinu þessa innheimtu í dag? Hvað eru mörg olíufélög? Þrjú eða fimm. Það þarf að rukka þrjá eða fimm aðila um gjaldið í dag. Hvað eru margir bifreiðareigendur á Íslandi? 150.000? 200.000? Ég held að það væri skynsamlegt og myndi einnig bera vott um ákveðið hugrekki ef stjórnvöld féllu frá þessum áformum um að innleiða þetta nýja kerfi fyrir bifreiðaeigendur.

Ég er landsbyggðarþingmaður og hef auðvitað áhyggjur af því þegar ferðamenn koma til landsins og fá sér bílaleigubíl, eins og er mjög algengt, og aka svo eins og leið liggur hvert sem þeir hyggjast fara, austur á Jökulsárlón, á Gullfoss og Geysi, norður í land, allt norður í Grýtubakkahrepp, vestur á firði. Ferðamenn munu að sjálfsögðu líta á kílómetramælinn. Þeir munu líta á kílómetramælinn áður en þeir hefja sína ferð og reikna út hvað þeir þurfi nú að borga ef þeir ætla að fara þangað og hingað. Þetta mun valda því að menn aki styttri leiðir, fari í styttri ferðir og stilli ökuferðir sínar eftir þessu gjaldi. Menn munu frekar fara á Gullfoss og Geysi en Jökulsárlón. Menn munu frekar fara upp í Borgarfjörð en norður í land.

Er þetta það sem við viljum, frú forseti? Er þetta það sem við viljum stefna að, að uppbygging haldi áfram og verði alltaf hér í kringum höfuðborgarsvæðið, í kringum alþjóðaflugvöllinn, á Keflavíkurflugvelli? Þetta gjald leiðir ósjálfrátt til þess að ferðaþjónustan lengra frá höfuðborginni mun bera skarðari hlut frá borði en hún hefur gert hingað til og þótti mörgum nóg um.

Ég ætla nú ekki að ræða aðrar skattahækkanir en auðvitað spilar þetta saman við skattahækkunina hvað varðar vörugjöldin. Það spilar þar inn í og veldur hækkun á bifreiðum. Kílómetraskatturinn og vörugjöldin spila saman í því að það er stór hætta á því að það komi högg á ferðaþjónustuna. Þurfum við á því að halda í dag? Þetta eru 3,3 milljarðar. Þurfum við á því að halda, frú forseti, að setja ferðamannaiðnaðinn, ferðaþjónustuna, í hættu fyrir 3,3 milljarða sem kostar 1,5 milljarða að innheimta? Við skulum ekki gleyma því. Þurfum við á því að halda að setja ferðaþjónustu í hættu þegar við erum búin að setja starfsskilyrði sjávarútvegs í hættu? Áhrifin af því eru ekki enn komin fram að fullu. Iðnaðurinn í landinu sætir áföllum vegna bilana, tolla og lokana. Ekki er útséð með það hver áhrifin verða á þjóðarbúskapinn hvað iðnaðinn varðar eða sjávarútveginn og nú á að ráðast á þriðju meginstoð íslensks efnahags, þ.e. ferðaþjónustuna. Ætlar þessu aldrei að linna, frú forseti? Þetta er gert fyrir 3,3 milljarða sem kostar 1,5 milljarða að innheimta.

Skatturinn er lagður á og svo er annað, sem ég var búinn að gleyma, að hann er lagður á í 29 gjaldflokkum. Ef þú rekur fyrirtæki sem hefur bifreiðar, bílaleigur eða vöruflutningafyrirtæki með margar bifreiðar í mismunandi þyngdarflokkum, þá er bara heljarinnar vinna að standa skil á þessum skatti. 29 gjaldflokkar og fyrsti gjaldflokkurinn er frá 0 og upp í 3.500 kíló. Hvaða skilaboð eru það að ætla sér að innheimta sama kílómetragjald af þeim sem eru búnir að vera forsjálir og kaupa Yaris, og þar af leiðandi spara sér bensín á eyðslugrönnum bíl, og af einhverjum á jepplingi sem er nálægt því að vera kannski 3,5 tonn? Sama gjald, frú forseti. Það er verið að sýna þessu fólki fingurinn, fólkinu sem var að spara við sig í bensínkaupum og keypti sér Yaris, því að hinir sem keyptu sér eyðslufrekari bifreiðar, 3 tonn og rúmlega það, borga sama gjald. Hvert mun þetta leiða? Þetta mun auðvitað leiða til þess að það skiptir ekki nokkru máli hvort þú kaupir Yaris eða, ef þú hefur efni á því, eyðslufrekari bifreið sem er þyngri því að það er sama gjald á kílómetrann. Þetta fólk sem verslaði sér eyðslugrönnu bílana síðustu ár er haft að leiksoppi í þessu leikriti sem við erum hér að horfa á. Það eru 29 gjaldflokkar. 29, var ég búinn að segja það? Ímyndið ykkur flækjustigið.

Maður myndi kannski halda að ríkisstjórnin væri að taka upp stórkostlega yndislegt kerfi nágrannalanda okkar og þetta væri bara sjálfsagt því að það væru allir aðrir með þetta. En vitið þið hvað? Kílómetraskatturinn þekkist hvergi. Hann þekkist hvergi á byggðu bóli en við ætlum að gera þetta á Íslandi, taka upp flóknasta kerfi til innheimtu á bifreiðar sem fyrirfinnst í veröldinni. Þetta er hvergi til, frábært. Og hvernig skyldi gamla fólkinu sem er kannski ekki mjög fært á tölvur ganga að skila inn kílómetrastöðu og leiðréttingarblöðum og reyna að ná sér í endurgreiðslu á ofreiknuðum skatti o.s.frv. í gegnum Stafrænt Ísland? Hvernig mun það ganga? Líklega verður bifreiðin meira inni í bílskúr frekar en að þau hætti sér í frumskóg þessarar gjaldtöku sem hér er verið að innleiða.

Þetta veldur auðvitað stórkostlega auknum rekstrarkostnaði fyrir bifreiðaleigur og svo er það líka það — sem ég var búinn að gleyma og þyrfti kannski að fara í aðra ræðu, frú forseti, því að ég sé að tíminn er kominn langt — að þetta gjald sem er lagt á núna á að taka gildi 1. janúar. Það eru hvað, 20 dagar í það, 19. Skyldu þessar bílaleigur kannski vera búnar að selja bifreiðar samkvæmt samningum í janúar og á næsta ári? Hvernig skyldi sá samningur hljóða, upp á kílómetragjald? Nei, ekki nema þær hafi að störfum einhverja framtíðarfræðinga sem geta séð fram í tímann vegna þess að þetta á að taka gildi núna eftir 19 daga og það er auðvitað löngu búið að selja leigu á bifreiðum á næsta ári. Svo mæta ferðamennirnir og þá er sagt: Heyrðu, þú verður að borga sérstakan skatt af hverjum kílómetra sem þú ætlar að aka. Í einhverjum tilvikum mun þetta gjald, þetta högg, lenda á bílaleigunum sjálfum vegna þess að þær eru búnar að gera þessa samninga.

Það eru margar aðrar afleiðingar sem fylgja þessu. Þetta hefur auðvitað áhrif á það hvort ferðamenn komi til Íslands yfirleitt. Auðvitað hefur þetta áhrif á það ef þú ert að velja að fara að sjá norðurljós hvort þú ferð til Íslands eða Noregs, ef bílaleigubifreiðin er dýrari á Íslandi. Að sjálfsögðu hefur þetta áhrif á samkeppnishæfni okkar.

Ég óska eftir því, frú forseti, að vera settur aftur á mælendaskrá.