157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:01]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Við höldum áfram í umræðu um frumvarp um kílómetragjald. Í morgun fór fram fundur hér hjá Samtökum ferðaþjónustunnar í næsta húsi og yfirskrift fundarins var skattspor ferðaþjónustunnar. Þetta var áhugaverður fundur og áhugaverðar umræður. Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent öllum þingmönnum hugmyndir að því hvernig hægt sé að milda það högg sem boðað er í þessu frumvarpi sem við ræðum hér um og langar mig í þessari ræðu að fara stuttlega yfir þau áhrif og þær boðuðu breytingar sem fram undan eru varðandi það ef kílómetragjaldið verður að lögum.

Samkvæmt frumvarpinu á frumvarpið að taka gildi 1. janúar 2026 þannig að tíminn er naumur. Það hefur komið fram ákall þess efnis frá ferðaþjónustunni að gildistökunni verði frestað um a.m.k. um eitt ár. Það er nú einu sinni þannig að það er langt síðan byrjað var að selja árið 2026 til ferðamanna. Það er búið að selja — ef ég vitna nú beint í forstjóra Hölds, Steingrím Birgisson, þá var hann búinn að selja 180.000 daga, ef ég tók rétt eftir, alla vega stóran hluta af árinu. Það er alveg ljóst að sá reikningur sem kemur á ferðaþjónustufyrirtæki, þ.e. Bílaleigu Akureyrar, verður ekki sendur á ferðamenn sem hafa bókað sér bílaleigubíl til að keyra um landið á ferð sinni hér, heldur er það fyrirtækið sem þarf að bera kostnaðinn af því. Rauði þráðurinn í gegnum þennan fund í morgun var sá að það er mikil áskorun fyrir ferðaþjónustuna að takast á við þetta jafnframt því að það eru harðnandi aðstæður á markaði sömuleiðis. Þó svo að það hafi verið gríðarlegur vöxtur innan ferðaþjónustunnar undanfarin ár þá er farið að harðna verulega á dalnum. Það að bæta kílómetragjaldinu við er mikið högg, ég ætla ekki að segja rothögg en alla vega það mikið högg að það kemur til með að hafa veruleg áhrif á framtíð ferðaþjónustunnar, uppbyggingu, fjárfestingargetu o.fl.

Samtök ferðaþjónustunnar leggja hér til ýmis atriði. Þau byrja á því að minnast á þau neikvæðu áhrif sem kílómetragjaldið hefur á ferðaþjónustuna og þau eru margþætt. Fyrsta atriðið er að kílómetragjaldið leggur í sjálfu sér samkeppnishæfi ferðaþjónustuaðila algerlega að veði. Kílómetragjaldið dregur sömuleiðis úr verðmætasköpun, lækkar landsframleiðslu, minnkar útflutningstekjur, minnkar fjárfestingu og eykur viðskiptahalla. Þetta er skoðun Samtaka ferðaþjónustunnar. Kílómetragjaldið teflir afkomu ökutækjaleiga í tvísýnu og kílómetragjaldið gengur þvert á tvö meginmarkmið ferðaþjónustunnar; það eykur árstíðarsveiflu greinarinnar og dregur úr dreifingu ferðamanna um landið. Er það það sem við erum að kalla eftir? Er það sú óskastaða sem við erum að setja upp? Nei, við höfum verið að vinna á hinn veginn, þ.e. að dreifa ferðamönnum um landið svo að ferðaþjónustan geti dafnað á landsbyggðinni. Hættan er sú að ferðamenn komi í land hér á suðvesturhorninu og fari í mesta lagi austur í áttina að Vík í Mýrdal og síðan kannski vestur í Búðardal. Þá eru Austfirðirnir og Vestfirðirnir alveg eftir. Jú, vissulega er gátt inn í landið að norðanverðu í kringum Akureyri og Egilsstaði. En það er ekki tilgangurinn og það hefur ekki verið sú hugsun þegar við höfum verið að horfa til þess hvernig við byggjum upp ferðaþjónustuna. Þetta er gríðarlegt högg og það er ekki gott, engan veginn í lagi, að við ætlum að hunsa áhyggjur ferðaþjónustunnar af því sem þeir eru að vara við.

Það kom fram í máli mínu í minni fyrstu ræðu, sem ég hélt hér í fyrradag, að ég get alveg tekið undir hugmyndafræðina í sjálfu sér er snýr að gjaldtöku að einhverju leyti. Ég held að það sé í sjálfu sér enginn sem mælir gegn því. Mér finnst eðlilegt að þeir sem noti vegina borgi fyrir það en það er spurning hvernig við ætlum að fara að því. Er þetta leiðin, kílómetragjaldið? Eða eigum við að taka upp vegtolla? Síðan er það nú einu sinni þannig, virðulegi forseti, að það eru ekki bara skattarnir og kílómetragjaldið sem ferðaþjónustan er að bera, það eru boðaðar hér miklar hækkanir á vörugjöldum sem leggjast sömuleiðis á ferðaþjónustuna af miklum þunga og svo mætti lengi telja. Það eru fjölmargar hækkanir í farvatninu og síðan ætlar hæstv. stjórnarmeirihluti og ríkisstjórn að neita okkar helstu gjaldeyrisskapandi atvinnugrein um það að hafa fyrirsjáanleika. Það er það eina sem þau biðja um, þau vilja fá fyrirsjáanleika á því hvernig þau ætla að takast á við skattahækkanir. Samtök ferðaþjónustunnar koma með tillögu að raunhæfum lausnum. Fari svo að upptaka kílómetragjaldsins gangi í gegn verður að tryggja ökutækjaleigum og ferðaþjónustu fyrirsjáanleika og sömuleiðis skynsamlegt aðlögunarfyrirkomulag. Leið eitt, að þeirra mati, væri sú að ef af verður taki kílómetragjaldið ekki gildi fyrr en 1. janúar 2027 og árið 2026 verði notað til þess að vinna með ökutækjaleigunum að nánari útfærslu gjaldsins fyrir svona stóra notendur. Síðan er önnur leið, sem Samtök ferðaþjónustunnar koma inn á líka, þ.e. að gjaldið verði innleitt í þrepum. Það væri í hlutfalli og farið væri í að 60–65% af gjaldinu verði komið á 2026, 75–80% árið 2027 og 90% árið 2028.

Þetta eru leiðirnar sem Samtök ferðaþjónustunnar kalla eftir að farið verði í en heppilegast væri, virðulegur forseti, að slá þessu algerlega á frest og vinna málið betur. Það er ekki bara ferðaþjónustan sem er að taka mikið högg á sig og það hefur verið rætt hér í hörkuræðum margra þingmanna hvað varðar þau áhrif sem upptaka kílómetragjalds hefur á landsbyggðina. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Heppilegast væri fyrir okkur að ríkisstjórnin dragi málið til baka og að það yrði unnið betur.