kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Hv. þingmanni varð tíðrætt um áhrifin á ferðaþjónustuna í ræðu sinni og ekki að ástæðulausu. Eins og við þekkjum og heyrðum m.a. í fyrri ræðu hv. þingmanns hefur þetta mjög víðtæk áhrif á samfélagið allt. En þetta hefur alveg sérstök áhrif á ferðaþjónustuna sem er lent í vörn af ýmsum ástæðum sem við þekkjum og bílaleigur hafa gert þær ráðstafanir sem margir hafa lýst hér til að reyna að takast á við þá óvissu sem ríkisstjórnin, stjórnarmeirihlutinn hér í þinginu, er að búa þessari atvinnugrein. Er ekki hv. þingmaður sammála um að þetta snúist um meira en bara bílaleigurnar? Þetta snýst líka um stóra takmarkið til áratuga á Íslandi, að dreifa ferðamönnum betur um landið. Fyrir vikið, og hv. þingmaður svo sem vék að þessu en mér fannst rétt að undirstrika það og fá skýra afstöðu hv. þingmanns til þess, verður fjöldinn allur af sérstaklega minni ferðaþjónustufyrirtækjum hringinn í kringum landið settur í mjög verulega óvissu. Það er óumdeilt að þessi áformaða gjaldtaka muni hækka verð bílaleigubíla. Menn þekkja það að hærra verð þýðir minni eftirspurn. Það verða sem sagt færri en ella sem munu leigja bílaleigubíla og keyra á eigin vegum um landið. Þetta hefur áhrif um allt land og getur jafnvel, og ég vil gjarnan heyra mat hv. þingmanns á því hvort hann sé sammála mér um það, riðið baggamuninn um það hvort mörg minni ferðaþjónustufyrirtæki um allt Ísland lifi af eða ekki.