kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir góða spurningu. Eins og ég vék að í minni ræðu þá sótti ég fund hér í morgun hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Þar kom þetta akkúrat fram, það sem hv. þingmaður var að spyrja mig að, og ég deili þeim áhyggjum sem hv. þingmaður hefur og sömuleiðis Samtök ferðaþjónustunnar sem snúa að dreifingu ferðamanna. Samtökin vara við því að ferðamenn fari lengst til austurs að Vík í Mýrdal og síðan stoppi þeir í Búðardal og fari ekki lengra. Það er alveg ljóst að sú uppbygging sem hefur verið víða á landsbyggðinni er í stórhættu ef þessar spár rætast allar. Það er grafalvarleg staða. Það er náttúrlega alls ekki það markmið sem unnið hefur verið að. Það hefur fyrst og fremst verið unnið að því að reyna að fjölga atvinnutækifærum úti á landi en það virðist vera orðið keppikefli hjá stjórnvöldum að leggja stein í götu þeirra hvað það varðar. Aftur á móti kom alveg skýrt fram hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, og sömuleiðis í þeim gögnum sem þau hafa sent okkur hv. þingmönnum hér í umræðu um kílómetragjald, að þau vara bara beinlínis við þessu. Þetta er stóra hættan og mér er alveg fyrirmunað að skilja þennan tregðugang hvað það varðar að hægt sé að horfa til þess að alla vega fresta gildistökunni um ár og vinna þetta með ferðaþjónustunni á einhvern skynsamlegan hátt. (Forseti hringir.) Ferðaþjónustan er ein af okkar mikilvægustu gjaldeyrisskapandi atvinnugreinum sem við höfum hér.