kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Það er ekki langt síðan margir hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans voru ítrekað að lýsa því yfir í ræðu og riti hversu mikilvæg ferðaþjónustan væri orðin fyrir Ísland. Þetta væri ekki lengur bara sjávarútvegur og álframleiðsla, nú væri ferðaþjónustan orðin gríðarlega mikilvæg stoð. Þess vegna finnst mér afskaplega sérkennilegt að stjórnin ákveði að vega sérstaklega að þeirri grein. Við höfum heyrt viðvörunarmerki þegar verið var að ræða skattahækkanir á sjávarútveg og gjaldahækkanir á iðnað; þá gaf ríkisstjórnin, hæstv. forsætisráðherra þar á meðal, til kynna að þetta myndi síðan ná yfir fleiri greinar og ferðaþjónustan var þar nefnd. Í ákvörðunum sínum um skattlagningu virðast stjórnvöld ekki líta á heildaráhrifin og langtímaáhrifin af þeim ákvörðunum. Ég er dálítið hræddur um að þessi áform muni ekki auka tekjur ríkisins eins og núverandi ríkisstjórn gerir ráð fyrir. Við þekkjum umsýslukostnaðinn við þetta en þeir 2 milljarðar eða svo, eða tæplega það, sem þá verða eftir verði meira en vegnir upp af tapinu sem hlýst af því að ferðaþjónustan sé sett í slíka vörn og að jafnvel fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja einfaldlega gefist upp. Á sama tíma er ríkisstjórnin að leggja til auknar fjárveitingar í að auglýsa landið en getur ekki bara leyft ferðaþjónustunni að vera í friði og gera það sem hún gerir best. Spurning mín er þessi: Er þetta liður í einhvers konar allsherjar hugsanaskekkju hjá þessari ríkisstjórn þegar kemur að skattlagningu?