kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur fyrir góðar spurningar og sömuleiðis gott innlegg í umræðuna. Ég ætla að vitna enn og aftur í morgunverðarfundinn í morgun hjá Samtökum ferðaþjónustunnar. Þar var til svara hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Það kom alveg skýrt fram hjá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að sú leið að hækka skatta væri ekki eingöngu og alltaf sú góða og rétta leið til að auka tekjur ríkissjóðs en bætti því síðan við að einhvers staðar þyrfti að ná í tekjurnar því að það vantaði pening annars staðar til frekari uppbyggingar á innviðum eins og t.d. samgöngukerfinu.
En mér sýnist á öllu, virðulegi forseti, að sú leið sem verið er að fara og var mörkuð í sumar, 14. júlí síðastliðinn, er veiðigjöldin urðu að lögum, hafi verið upptaktur að þessari vegferð sem verið er á og enginn afsláttur virðist vera gefinn af þeirri vegferð. Í mínum huga er mjög eðlilegt að það séu lögð gjöld á hina og þessa þætti en við megum samt aldrei hafa gjöldin þannig að þau skerði framgang atvinnureksturs. Grunnurinn að því að skapa tekjur er að atvinnurekstur hafi góð starfsskilyrði og skapi tekjur sem skila síðan ríkissjóði auknum ábata af þeirri starfsemi.