kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðilega ræðu. Hann fór víða og gaf þar af leiðandi kost á mörgum spurningum. Mig langar hins vegar aðeins að byrja á því að draga fram, vegna þess að nú hef ég undir höndum raungögn um það, samskipti milli innheimtumanna ríkisins og eiganda hreinorkubifreiðar sem þarf að vera í stöðugum aflestri. Það er hreint með ólíkindum að skoða þessi samskipti, þennan fjölda pósta, ætli þetta séu ekki u.þ.b. 20 samskipti yfir árið af einum bíl. Það er aflestur og það er áætlun og svo fer bíllinn í skoðun eða viðgerð og þá er staðan endurtekin og það kemur ný áætlun o.s.frv. Ef þetta yrði t.d. útfært á, gefum okkur bara tiltölulega stóra bílaleigu til þess að gera, segjum 3.000 bíla flota, hvað erum við þá að reikna okkur upp í, hv. þingmaður, einhver 60.000 samskipti? Hvað er svona einfalt og gegnsætt og frábært við þetta? Nú hefur það komið fram í máli þingmanna meiri hlutans hér ítrekað að þetta verði svo gegnsætt og einfalt í framkvæmd. Með þessa örfáu bíla sem nú þegar eru inni í kerfinu virðist hvorki ganga né reka að eiga hér tiltölulega einföld samskipti eins og þau samskipti sem eigandi dísilbíls eða bensínbíls á við innheimtumenn ríkisins; hann gerir það bara þegar hann dælir á bílinn og olíufélagið sér svo um að skila gjöldunum. En við erum hér að hverfa aftur til þeirra tíma, sem ég veit að hv. þingmaður man vel eftir, þegar við vorum með svokallaða nafmæla í vinstra afturhjóli dísilbílanna og stóðum svo í áætlanagerð og aflestrum alveg linnulaust. Hvað er það sem er svona frábært, hv. þingmaður, við þessa hugmyndafræði?