kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi spurningar. Hv. þingmaður spyr: Hvað er svona gott við þetta kerfi? Ég á ansi erfitt með að svara því en við þekkjum það, hvort sem við eigum rafmagnsbíla eða tengiltvinnbíla, að við fáum svona skilaboð nokkuð reglulega. Ég skal alveg viðurkenna að það truflar mig ekkert sérstaklega mikið og þau samskipti hafa verið ágæt en aftur á móti skil ég alveg hvert hv. þingmaður er að fara. Stóra vandamálið sem snýr að bílaleigum er að það þarf að rukka ferðamanninn eftir á, eftir að akstri lýkur. Það er stóra málið. Ég hef engar áhyggjur af því að eiga við Íslendinga hvað þetta varðar heldur þegar kemur að því að fara að innheimta gjald af eknum kílómetrum eftir á, sérstaklega þegar það er þannig að þegar viðkomandi ferðamaður bókaði ferðina var þetta gjald aldrei inni í myndinni, bara aldrei. Það er það sem bílaleigurnar eru fyrst og fremst að vara við. Ég hef svo sem ekki mikið heyrt af því að þær séu að barma sér yfir því að þurfa að eiga einhver samskipti við innheimtumann ríkissjóðs en vissulega hafa þær bent sterklega á að það sé heppilegt að eiga þessi samskipti við fjóra aðila, þ.e. innflutningsaðila og smásöluaðila og jarðefnaeldsneyti. En hv. þingmaður, ég skil hvert þú ert að fara. Vissulega eru samskiptin mýmörg (Forseti hringir.) en það sem ég held að verði fyrst og fremst vandamálið í þessu er það að innheimta gjaldið eftir á af ferðamanninum sem floginn er úr landi.