157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:25]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hann kom aðeins inn á eitt flækjustigið í þessu sem eru innheimturnar. Miðað við þær upplýsingar sem okkur berast frá þessum fyrirtækjum erum við að sjá kannski, sem er auðvitað hrollvekjandi ef rétt reynist, svona 80% innheimtuhlutfall. Ef við setjum allan flotann inn í þetta kerfi og innheimtuhlutfallið helst áfram á þessu bili, hvað ætli sé mikið af peningum að tapast úr landinu þá? Ég er ekki búinn að reikna það, ég get alveg upplýst hv. þingmann um það. Ég held að ég treysti mér ekki í það einu sinni því að til þess þarf ég svo ofboðslega margar staðreyndir, fjölda leigudaga, ekna kílómetra, mismunandi gjaldflokka bíla o.s.frv. En í ljósi þess finnst mér eðlilegt að spyrja hvort hv. þingmaður hafi ekki fyrir hönd ríkissjóðs, fyrir hönd þessara fyrirtækja, áhyggjur af því hvernig muni ganga að sækja þessa peninga. Einnig get ég upplýst, af því að hv. þingmaður vék að því, varðandi það hvað þarf til að sækja og innheimta, að það hefur verið sagt af fulltrúum úr greininni að fyrir t.d. eina stóra bílaleigu sé þetta svona eitt til eitt og hálft stöðugildi sem fer bara í að eltast við þá sem eru að leigja bílana og innheimta. Það er líka kostnaður. Það væri gaman að heyra hvað hv. þingmanni þykir um það að nú sé ríkið farið að krefja einkarekin fyrirtæki í landinu um að ráða til viðbótar starfsmann sem verði einhvers konar innheimtumaður ríkisins.