kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ljómandi spurningu. Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, fór á fundi Samtaka ferðaþjónustunnar í morgun ágætlega yfir þann kostnaðarauka sem leggst bara á þá bílaleigu. Vissulega er Bílaleiga Akureyrar stærsta bílaleiga landsins og ég bara þori ekki, virðulegur forseti, og vil ekki fara með tölurnar því að ég held að ég sé ekki með réttar tölur í kollinum, en það voru gríðarlegar upphæðir sem voru að leggjast á bílaleigurnar hvað það varðar. Sömuleiðis tiltók Steingrímur Birgisson allar þær gjaldahækkanir sem tengjast t.d. vörugjöldum og þetta leggst í sjálfu sér allt á atvinnugreinina. Til að gæta sanngirni í allri umræðu þá held ég að bílaleigurnar og ferðaþjónustan ráði væntanlega við ákveðnar kostnaðarhækkanir en að láta sér detta það í hug að innleiða svona kostnaðarhækkun, virðulegur forseti, eftir nokkra daga gengur ekki upp. Það er stóra málið í þessu. Það þarf að vinna málið mun, mun betur og vinna það með hagaðilum. Það er lykilatriði vegna þess að við viljum að ferðaþjónustan blómstri og dafni um allt land en ekki bara á einhverju afmörkuðu svæði hér á milli Hvítánna.