157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:29]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Kosningasvik ríkisstjórnarinnar taka á sig ýmsar myndir og hér ræðum við eina þá skýrustu. Það voru gefin mikil fyrirheit, eiðar svarnir fyrir kosningar, einkum af hálfu Samfylkingar og Viðreisnar, um að skattar yrðu ekki hækkaðir, a.m.k. ekki á venjulegt fólk eins og það var kallað. Þetta var til að halda því opnu að hækka skatt á sjávarútveg en bæði forystumenn Samfylkingar og Viðreisnar ítrekuðu að auknir skattar ættu ekki að leggjast á almenning í landinu.

Fleiru var lofað fyrir síðustu kosningar sem á einu ári hefur meira og minna allt verið svikið en sérstaklega eru skýr þessi svik í skattamálum og þetta mál sem við ræðum hér er afar skýrt dæmi um það. Með þessum hækkunum kílómetragjalds er verið að leggja auknar álögur á venjulegt fólk, svo ég styðjist við orðalag hæstv. ráðherra. Það er verið að leggja mjög auknar álögur á flest heimili landsins og það er verið að gera það með þeim hætti að það bitnar einna þyngst á landsbyggðinni, í dreifbýlinu og á ferðaþjónustunnni sem nú er í talsverðri vörn eftir ýmsa atburði sem hafa sett starfsöryggi ferðaþjónustufyrirtækja í óvissu.

Ég rakti það aðeins áðan í andsvari við hv. þm. Þórarin Inga Pétursson að ef verð bílaleigubíla, og þeir eru dýrari á Íslandi fyrir, hækkar þá mun það draga úr eftirspurninni. Ég held að meira að segja ráðherrar í þessari hæstv. ríkisstjórn viðurkenni það að verðhækkun muni leiða til minni eftirspurnar sem þýðir einfaldlega að það ferðast færri um landið en ella, það fara færri út í hinar dreifðari byggðir, það fara mun færri í Norðausturkjördæmi t.d. sem er lengst frá höfuðborgarsvæðinu. Þau ferðaþjónustufyrirtæki sem hafa reitt sig á það að ferðamenn kæmust á eigin vegum, væru á eigin bíl en ekki í pakkaferð í rútu, munu finna fyrir verulegri fækkun og mega ekkert við því.

Það er nefnilega með þessi áform eins og svo mörg áform þessarar ríkisstjórnar að dæmið virðist ekki hafa verið hugsað til enda. Þetta er kynnt á einhverjum forsendum en þegar farið er að skoða innihaldið, þegar stjórnarandstöðuþingmenn gagnrýna innihaldið, er einfaldlega brugðist við með umbúðamennskunni sem einkennir þessa ríkisstjórn. Þetta hefur nú gengið svo langt í öðrum málum að hæstv. ráðherrar hafa einfaldlega sakað þingmenn stjórnarandstöðunnar um að vera fulltrúar einhverra afmarkaðra hópa í samfélaginu ef þeir leyfa sér að gagnrýna áform ríkisstjórnarinnar. Þannig fengum við að heyra það þegar lagt var til að hækka veiðigjöld, aftur með afskaplega óskynsamlegum hætti, óskynsamlegri nálgun, og við bentum á að þetta myndi bitna sérstaklega á minni útgerðum, sérstaklega á landsbyggðinni, rétt eins og það sem við ræðum nú bitnar á minni ferðaþjónustufyrirtækjum og á landsbyggðinni — hvert var þá svarið? Hvað sagði hæstv. forsætisráðherra? Hann sagði að þetta mál, þetta frumvarp, snerist um fjórar eða fimm fjölskyldur. Þetta er alveg ný nálgun við stjórn réttarríkis, að ríkisstjórnin leggi fram mál sem eiga að beinast eingöngu að ákveðnum fjölskyldum og afkomu þeirra. En auðvitað var þetta ekki satt eins og við sjáum á afleiðingunum nú þegar. Hverjir eru að missa vinnuna? Fiskverkafólk þar á meðal. Hverjir eru í erfiðri rekstrarstöðu? Litlu fyrirtækin. Stóru fyrirtækin réðu við þetta. Þetta var notað eins og hjá rauðliðum í gamla daga, aðferð til að reyna að berja niður gagnrýni eða áhyggjur almennings með því að segja: þetta varðar ykkur ekki, þetta eru bara stóru vondu útgerðarkarlarnir.

Sami leikur var leikinn þegar ríkisstjórnin kynnti áform sín um afnám samsköttunar hjóna. Hvernig var það réttlætt? Jú, fólki var sagt að hafa engar áhyggjur af þessu, þetta varðaði bara eitthvert fólk í Garðabæ eða á Seltjarnarnesi og algerlega litið fram hjá því að samsköttun nýtist ekki hvað síst hjónum þar sem annað verður fyrir tekjumissi, af hvaða ástæðum sem þær kunna að vera, ekkert rætt um að með þessu væri verið að vega að grunneiningu samfélagsins, fjölskyldunni. Nei. Aftur var reynt að spila á öfund og því haldið fram að þetta varðaði ekkert allan almenning, eins og einhvers konar byltingarstjórn sem tekur eina sneið í einu í trausti þess að menn muni aldrei bregðast við af því að þeir trúi að það mál sem er til umræðu hverju sinni varði ekki þá sérstaklega. En hér erum við að ræða mál sem augljóslega varðar meira og minna alla í þessu samfélagi. Við erum að ræða enn ein áformin um skattahækkanir, auknar álögur á almenning, og maður getur ekki annað en velt því fyrir sér þegar maður sér hvernig þessi ríkisstjórn fer af stað í skattahækkana- og gjaldahækkanaáformum sínum; fær ríkið aldrei nóg að mati þessarar ríkisstjórnar? Verður aldrei nóg lagt á almenning á Íslandi? Fólk borgar jú hina ýmsu skatta, tekjuskatt, virðisaukaskatt og hin ýmsu gjöld og ímyndaði sér kannski að þau gjöld ættu að standa undir þjónustu hins opinbera. En hvað gerir þá hið opinbera? Það eyðir öllum peningunum og meira til og segir svo: Við þurfum að leggja sérstaka nýja skatta eða ný gjöld á þetta og hitt af því að okkur skortir peninga. Þannig sáum við það t.d. í Reykjavík að þrátt fyrir að eitt af meginverkefnum borgarstjórnar hafi átt að vera það að hirða sorp — menn borga nú töluvert útsvar í Reykjavík og í flestum tilvikum hugsa ég að útsvarið sé hærra en tekjuskatturinn — það þurfti að taka sérstakt gjald fyrir eitt af grundvallarverkefnum borgarinnar, það að hirða sorp. Svo var farið í að mæla hversu langt sorptunnurnar væru frá götunni og annað eftir því.

Þetta birtist líka ítrekað hjá ríkisvaldinu. Það er aldrei nóg. Fólk er búið að borga sína skatta, virðisaukaskatt af öllu sem það kaupir, háan virðisaukaskatt, háan tekjuskatt, íslenskur almenningur er einn sá skattpíndasti í heimi en samt þarf hann alltaf í auknum mæli að borga fyrir hvert atriði fyrir sig og núna borga meira fyrir að fá að komast leiðar sinnar, keyra um vegina. Með því er auðvitað dregið úr ferðum og verðmætaskapandi starfsemi. Því var reyndar lýst í mörgum af fyrri gjaldahækkunaráformum á umferð sem urðu að veruleika að það væri oft og tíðum til þess ætlað að draga úr umferðinni, t.d. öll þessi refsigjöld, kolefnisgjöldin og allt það. Það væri á einhvern hátt óæskilegt að fólk væri að þvælast um of mikið þannig að það þyrfti að refsa fólki fyrir það til að fá það til að gera minna af því. Þá er varla hægt að draga aðra ályktun af þessu kílómetragjaldi en að það sé liður í þessum áformum um að Íslendingar séu ekki svona mikið á þvælingi og ekki ferðamennirnir heldur, séu ekki að ferðast hérna um allt landið, fyrirtækin séu ekki að senda vörur, framleiða bara í Reykjavík og þá þurfi ekki að keyra eins langt. Ekki vera að framleiða einhvern varning úti á landi í mörg hundruð kílómetra fjarlægð frá aðalmarkaðnum, ykkur er refsað fyrir það, refsað fyrir það, fyrir hvern kílómetra.

Þetta er nálgun sem ber vott um í fyrsta lagi óráðsíu, áminning um það að ríkisstjórnin geti ekki hamið sig í útgjöldum og verði þess vegna alltaf að finna nýjar matarholur, taka meira og meira af sjálfsaflafé almennings. En þetta er líka til marks um það að þessi ríkisstjórn hugar aldrei að heildarmyndinni, heildaráhrifunum, langtímaáhrifum af því sem gert er. Það er alltaf hrokkið aftur í það sem ég nefndi áðan og er eitt megineinkenni þessarar ríkisstjórnar: umbúðamennskan. Þetta eru tvö megineinkenni hjá þessari ríkisstjórn og þau eru nátengd, annars vegar að segja eitt og gera eitthvað allt annað. Það koma verðmætasköpunarhaust og ætli veturinn heiti ekki framfaraveturinn mikli og næsta vor vor frelsis og svo gerist alltaf þveröfugt. En þessu er haldið áfram af því að, nú komum við að seinna atriðinu, þetta er allt spurning um umbúðir frekar en raunveruleikann, frekar en raunveruleg áhrif þeirra ákvarðana sem eru teknar. Og fyrir vikið, af því að ríkisstjórnin byggist svo mikið á umbúðamennskunni, þá verða menn afskaplega viðkvæmir fyrir því þegar innihaldið er rætt og forðast það fyrir alla muni að ræða innihaldið og svara gagnrýni á það. Jafnvel þegar menn hafa, eins og nú í tengslum við þessi fjárlög, komið með skattahækkanaáform sem standast ekki stjórnarskrá er það útskýrt með einhverjum undanbrögðum. Við sáum nú bara, þótt það hafi ekki varðað beint skattamál, tvö skýr dæmi um þetta hér fyrr í dag. Annars vegar var það varðandi umræðu um EES-samninginn og hvernig hann henti okkur og að hverju þurfi að huga varðandi EES-samninginn, varðandi vinnuafl sem vissulega tengist skattamálum. Þá komu hin dæmigerðu viðbrögð frá hæstv. utanríkisráðherra, og raunar fleiri stjórnarliðum, að fara með trúarjátninguna um EES-samninginn og því haldið fram að þeir sem gagnrýndu á einhvern hátt framkvæmd hans eða bara bentu á þau tækifæri sem samningurinn veitir til að gera hlutina öðruvísi og betur, verja okkar hagsmuni, bara það að benda á það leiðir alltaf til þess að hér koma hæstv. ráðherrar og fara með trúarjátningu sína um EES-samninginn og jafnframt benda á að allir sem leyfi sér að gagnrýna þennan samning eða túlkun þeirra sjálfra á þessum samningi séu á móti þessum samningi. Hvernig á það við í þessu máli? Jú, væntanlega þannig að þeir sem leyfa sér að gagnrýna þetta kílómetragjald séu á móti því að vegunum sé haldið við. Engin rök í sjálfu sér, bara einhver ímyndarvinna og umbúðamennska. Annað sem gerðist fyrr í dag, og tengdist reyndar líka umræðunni um EES-samninginn, var að hæstv. dómsmálaráðherra lýsti því yfir í lok ræðu hv. þm. Snorra Mássonar um stöðu útlendingamála að ef menn vildu nýta greinar EES-samningsins til að hafa stjórn á flæði fólks til landsins á vinnumarkaðnum þá þyrftu þeir fyrir vikið að kalla heim alla þá 50.000 Íslendinga sem búa í útlöndum. Bara rugl, fullkomið rugl og ekki í neinu samræmi við þær ábendingar sem fram komu.

Svona starfar þessi ríkisstjórn og svona finnst mér hún ræða þetta mál sem við erum að fjalla um hér í dag eins og svo mörg önnur. Ef menn leyfa sér að gagnrýna þessa aðferð, þessa fráleitu aðferð sem hér er lögð til með 29 gjaldflokkum og umsýslan svo flókin og dýr að rúmlega helmingurinn af gjaldinu sem sett er á almenning skilar sér til ríkissjóðs, fyrir utan svo allt hitt tapið sem verður af þessu og meira en vinnur upp ávinninginn fyrir ríkið fjárhagslega, þá eru menn sakaðir um að vilja ekki betri vegi. Hvenær heyrðum við þetta síðast, að menn vildu ekki betri vegi ef þeir vildu ekki skattahækkanir? Jú, jú, það var í umræðunni um veiðigjöldin sem voru rökstudd sérstaklega með vísan til þess að þau ættu að renna í uppbyggingu samgangna í þeim landshlutum þar sem gjaldið væri lagt á. Það eru fáir landshlutar sem skila eins miklu í ríkissjóð og skila eins miklum útflutningstekjum vegna sjávarútvegs ekki hvað síst eins og Austurland. En eftir að búið var að keyra veiðigjaldahækkunina í gegn skiptu þessi rök engu máli lengur, þá birtist samgönguáætlun þar sem Austurland var skilið eftir, ýtt til hliðar, útundan, hugsanlega eitt hringtorg á Egilsstöðum. Að öðru leyti eiga seinni tíma ríkisstjórnir að sjá um það, þrátt fyrir að ríkisstjórnin væri nýbúin að keyra í gegn með offorsi lög til að ná í peninga til að setja í vegina á Austurlandi og samgöngur þar.

Það var ekkert að marka þetta, rétt eins og það er ekkert að marka rökin sem haldið er fram hér fyrir þessu frumvarpi. Þeir peningar, þeir tiltölulega litlu peningar sem á endanum nást úr þessu þegar heildardæmið er reiknað fara bara í hítina. Það eru engin áform um það hjá þessari ríkisstjórn að ráðast í stórkostlegar samgöngubætur, enda liggur það fyrir nú þegar að það eru miklu meiri gjöld lögð á vegfarendur, á bílaeigendur heldur en renna til samgöngumála, miklu, miklu meiri. Það þarf alltaf að hækka þau en svo bara skilar það sér ekkert í samgöngubæturnar af því að þetta snýst fyrst og fremst um eyðslusýki og skattasýki núverandi ríkisstjórnarflokka. Þess vegna þætti mér við hæfi að fleiri stjórnarliðar tækju þátt í þessari umræðu og töluðu um málið út frá innihaldinu, reyndu það, reyndu að réttlæta þessa aðferð við að afla tekna, aðferð sem leiða má líkur að því að muni á endanum skila ríkinu mjög litlu nettó og þegar allt er tekið, með neikvæðu áhrifin á efnahagslífið úti um land, þá verði hreint tap af þessu. Af hverju koma menn ekki hér og ræða innihaldið og útskýra af hverju þetta sé besta leiðin? Og kannski útskýra í leiðinni hvaða áhrif þetta muni hafa, ef einhver, á aðra gjaldtöku því að kolefnisgjöldin öll, allir refsiskattarnir virðast eiga að vera óbreyttir. Hvað verður með veggjöldin sem áttu að standa undir borgarlínu? Er það þá það sama og kílómetragjöldin? Ég minni á að það var ákveðið hér af meiri hluta þingsins að það ætti að leggja ný veggjöld á þá sem leyfa sér að ferðast um á eigin bíl til að borga borgarlínuna, auk þess sem þetta borgarlínuapparat, sem kallar sig í einhverri gráglettni Betri samgöngur, fékk eina verðmætustu eign ríkisins að gjöf til að standa undir framkvæmdum og upphafi framkvæmdanna. En hvað verður með veggjöldin, borgarlínuveggjöldin? Detta þau upp fyrir þegar þetta kílómetragjald leggst á af auknum þunga? Það væri áhugavert að heyra af því frá hv. þingmönnum stjórnarmeirihlutans. Er þetta bara spurning um þörfina fyrir meiri peninga í kassann eða kemur andúðin á ferðafrelsi fólks, einkabílnum, þarna inn í líka? Við heyrum varla annað af samgönguáformum hér á höfuðborgarsvæðinu en að borgarlínan eigi að vera þar í algjörum forgangi um ófyrirsjáanlega framtíð. Og talandi um gjaldtöku, herra forseti, minni ég á að enn er ekki búið að segja okkur, hvorki ráðherrar í síðustu ríkisstjórn né núverandi ríkisstjórn, hver eigi að reka þessa borgarlínu, hver eigi að standa straum af kostnaðinum. Ekki gera farþegarnir það. Það vita allir og viðurkenna, ekki frekar en hjá Strætó. Einhver mun þurfa að borga þetta, ekki bara framkvæmdina, einhver mun þurfa að standa undir rekstrinum á þessu til allrar framtíðar og það verður gríðarlegur hallarekstur sem af þessu hlýst á sama tíma og þrengt er að allri annarri umferð. Hver á að borga það?

Herra forseti. Auðvitað vitum við það. Þetta á að enda hjá ríkinu. Það á að henda þessu í fangið á ríkinu eins og öllu öðru. Ráðherrar hafa í bæði síðustu ríkisstjórn og núverandi ríkisstjórn látið teyma sig áfram út í þá vitleysu, út í þá fúamýri, en þingið, við þingmenn, þurfum á einhverjum tímapunkti að segja: Hingað og ekki lengra. Það er ágætt að byrja á þessu máli, segja nei, hugsið þetta betur, senda þetta aftur til ríkisstjórnarinnar með samgönguáætluninni, reynið nú að hugsa þetta til enda áður en þið komið með þetta inn í þingið og ætlist til þess að alþingismenn bara afgreiði þetta í blindni.