157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni kærlega fyrir hans innlegg í þessa umræðu. Ég hef fylgst með mörgum ræðum hér og sérstaka athygli mína vöktu orðaskipti milli hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar og hv. þm. Ólafs Adolfssonar hér fyrr í dag. Mig langaði aðeins að spyrja hv. þingmann, sem er formaður Miðflokksins, út í orð sem samflokksmaður hans, Karl Gauti Hjaltason, lét falla hér í lok andsvara við hv. þm. Ólaf Adolfsson af því að við ræddum um ferðaþjónustuna og það gerir hv. þingmaður líka. Hv. þingmaður sagðist vera hrifinn af því að rukka ferðamanninn sem mest fyrir viðhald vega. Það voru þau orð sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason lét falla. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður heyrði þá ræðu en ég hvet hann alla vega til að hlusta eftir síðara andsvari í þeim orðaskiptum. Ég velti þessu fyrir mér í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið hér því ég hef skynjað í öðrum ræðum hv. þingmanna Miðflokksins að þeir hafi frekar áhyggjur af því að ferðamaðurinn og ferðaþjónustan séu að borga of mikið heldur en of lítið. Ég spyr einfaldlega: Er stefna Miðflokksins að rukka ferðamanninn sem mest fyrir viðhald vega?