kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Ég bendi þér á að það hefði mátt hafa orð á því að eðlilegra hefði verið að beina þessu andsvari eða fyrirspurn að manninum sem vísað var í, hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni, því nú er ég settur í þá stöðu að þurfa að geta mér til um hvað hv. þingmaður átti við. En ég ætla að reyna það. Ég held ég geti það af því að ég þekki nú hv. þingmann ágætlega og ætla að leitast við að svara fyrir hans hönd þótt andsvarið komi hérna nokkrum ræðum of seint. Ég geri ráð fyrir því að hv. þm. Karl Gauti Hjaltason sé að benda á að það sé æskilegt að ferðamenn sem hingað koma greiði meira fyrir notkun veganna en raun ber vitni. En þetta er ekki besta leiðin til þess því að með þessari aðferð er verið að refsa landsmönnum öllum, þeim sem hér búa og þurfa að keyra um landið allt árið um kring.
Ég minnist þess eitt sinn á ferð um Evrópu að ég keyrði inn í Slóveníu. Þá var ég stöðvaður þar af einhvers konar landamæra- eða umferðarlögreglu og sagt: Hvar er vinjettan? Vinjettan — ég vissi ekkert hvað það væri. Þá var dregin fram mynd af skilti sem var falið á bak við tré við landamærin og þá hafði maður átti að sjá þegar maður keyrði yfir landamærin þetta skilti og kaupa sér svona miða í rúðuna til að hafa aðgang að vegakerfi Slóveníu. Síðar baðst nú reyndar forsætisráðherra Slóveníu afsökunar á þessu við mig eftir að ég útskýrði þetta með tréð og alla þessa nálgun landamæravörslunnar þar. En lærdómurinn af þessari sögu er kannski sá að þarna í Slóveníu var verið að rukka ferðamenn sérstaklega fyrir akstur um vegi sem þeir höfðu ekki greitt neina skatta til þess að viðhalda og byggja. Væri þá ekki nær að líta til einhvers konar sams konar aðferða hér, (Forseti hringir.) hvort sem menn vilja kalla þennan miða vinjettu eða eitthvað annað, að rukka ferðamenn sérstaklega eins og hv. þm. Karl Gauti Hjaltason lagði til?