157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:55]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég segi nú ekki sem mest en sanngjarnt gjald. Aðferðin til að innheimta sanngjarnt gjald af ferðamönnum sem hafa ekki greitt hér skatta í gegnum tíðina er ekki sú að leggja refsingu á alla, ferðamennina og landsmenn líka. Ef um væri að ræða einhvers konar sérstakt gjald fyrir bílaleigubíla þá er tiltölulega einfalt fyrir bílaleigurnar að greiða það gjald fyrir bílinn og rukka ferðamanninn. En það er auðvitað ekki hægt annað en að setja það í samhengi við aðra gjaldtöku því að þú getur ekki um leið refsað bílaleigunum með öllum tiltækum ráðum, þar með talið áformuðum vörugjaldahækkunum, og ætla svo að bæta hinu ofan á. Það þarf að taka tillit til þess. Það hefur verið einkenni þessara skatta- og gjaldahækkanaáforma ríkisstjórnarinnar að það er aldrei tekið tillit til fyrri gjaldtöku og þeirrar gjaldtöku sem þegar er fyrir hendi. Ef við ætluðum að fara þessa leið, að rukka sérstaklega ferðamenn, þá þarf um leið að taka tillit til þess í öðrum gjöldum og ekki hægt að hækka allt mögulegt á bílaleigurnar um leið. Með því verða þessar ferðir eða leiga á bíl einfaldlega allt of dýr. Það er þegar reyndar mjög dýrt, af skiljanlegum ástæðum, að leigja bíl á Íslandi. En mér finnst ekkert að því að aðgreina þetta í auknum mæli en það þarf þá að koma eitthvað á móti, t.d. með því að falla frá þessari vörugjaldahækkun sem ég held að væri nú þjóðráð, ekki bara fyrir bílaleigurnar heldur fyrir allan almenning í landinu og þótt þau lög hafi ekki enn verið samþykkt þá eru þau þegar búin að valda heljarmiklu tjóni eins og rakið hefur verið í allmörgum ræðum.