kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir allprýðilega ræðu. Nú er það svo að við hv. þingmaður deilum Norðausturkjördæmi ásamt átta öðrum þingmönnum, þ.e. við erum þingmenn fyrir Norðausturkjördæmi. Hv. þingmaður kom aðeins inn á það hver afdrif þeirra auknu veiðigjalda sem Austfirðingar þurfa að greiða væru og hver varð síðan afleiðingin af því þegar við horfðum framan í drög að samgönguáætlun sem var kynnt núna á dögunum. Mig langar, virðulegi forseti, að eyða þessum mínútum hér í andsvörum við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson á þessum nótum, sem snýr að því að umfjöllunin var og hefur alltaf verið þannig hjá ríkisstjórninni að þau gjöld sem væri verið að leggja á, hvort sem það er ferðaþjónusta, sjávarútvegur, almenningur og hitt og þetta, ættu að fara til uppbyggingar á samgöngumannvirkjum og við ættum bara að vera glöð með það úti á landi að fá loksins nýja vegi. Borgið bara svolítið meira. En hver er niðurstaðan? Hver er aukningin á milli ára t.d. í framkvæmdafé? Aukningin á milli ára er um 7,5 milljarðar, þar af eru 7 milljarðar sem koma í hina umtöluðu borgarlínu, sem er mikið áhugamál hv. þingmanns. Þannig að niðurstaðan er sú … [Brunabjalla hringir.] — Gerði ég eitthvað af mér, frú forseti?
(Forseti (ÞSv): Nei. Forseti sem steig úr stóli rak sig í takkann.)
Þá ætla ég að fá að klára. (IngÞ: Ég biðst forláts. )Það er kominn hiti í þetta, manni er bara veifað hér út með brunabjöllunni. — En erum við þá ekki komin þangað, hv. þingmaður, með þeirri gjaldtöku sem boðuð er með kílómetragjaldi og varðandi aðra gjaldtöku, að við erum að horfa upp á að þetta nýtist bara íbúum á milli Hvítánna?