157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:00]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Jú, það virðist stefna í það. Ég er ánægður að hv. þingmaður skyldi fá tækifæri til að lýsa niðurstöðunni þrátt fyrir að reynt hafi verið að koma í veg fyrir það hugsanlega með bjölluhringingum því þetta er ískyggileg niðurstaða. Ég er ekki að saka hæstv. forseta um það í alvöru að ætla að stöðva hv. þingmann. En þetta er mjög ískyggileg þróun sem hv. þingmaður lýsti í lok ræðu sinnar og ástæða til að gjalda varhuga við öllum þeim áformum sem þessi ríkisstjórn og reyndar sú síðasta líka, en við gerum ekkert í því úr þessu með þá síðustu — við öllum áformum núverandi ríkisstjórnar um að setja auknar álögur á landsmenn fyrir að komast leiðar sinnar til þess eins að nýta þær síðan í tiltölulega og í sumum tilvikum eins og í tilviki borgarlínu mjög óhagkvæmar og óæskilegar framkvæmdir.

Það þarf nefnilega í vegamálum og samgöngumálum eins og öðrum málum að líta á heildarmyndina, líta á Ísland allt og hvernig samgöngur spila þar saman, ekki nota samgöngumál sem afsökun eða leið til þess að taka bara meiri peninga af fólki og ýmist setja þá í hítina eða í delluverkefni eins og þessa borgarlínu. Það er alveg ótækt að ekki aðeins íbúar Reykjavíkur heldur nágrannasveitarfélaga líka og landsins alls þurfi að borga fyrir þessa furðuhugmynd Samfylkingarinnar sem er til þess ætluð að þrengja að umferð í Reykjavík. Af hverju þurfa íbúar á Húsavík að borga sérstaklega hærri skatta fyrir það að þrengt sé að umferðinni í Reykjavík? Þetta er vegna þess að menn ánetjast vanhugsuðum delluhugmyndum og huga ekki að heildar- og langtímaáhrifum þeirra ákvarðana sem eru teknar.