kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Eins og ég kom inn á í ræðu minni fyrr í dag þá sótti ég fund Samtaka ferðaþjónustunnar í morgun þar sem samtökin lýstu áhyggjum sínum af fyrirhugaðri lagasetningu sem snýr að kílómetragjaldi og sömuleiðis var komið aðeins inn á mál um hækkun og breytingar á vörugjöldum sem bíður hér 2. umræðu. Ég velti því fyrir mér, og langar að eiga skoðanaskipti við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson um það, þeirri mynd sem er hugsanlega að teiknast upp sem snýr að þessari breytingu sem boðuð er með kílómetragjaldi og því sinnuleysi stjórnvalda að virða ekki að lágmarki óskir ferðaþjónustunnar sem hefur sagt: Ef þetta er að fara í gegn þá verðum við að fá lengri tíma til að aðlaga okkur vegna þess að við erum búin að selja langt inn á næsta ár, 2026. Ég veit svo sem að svar hv. þingmanns yrði það að þetta frumvarp verði náttúrlega að fara í burtu en ef við þurfum að beygja okkur hér í duftið, sem vonandi verður ekki, þá er til þessi leið sem ferðaþjónustan hefur bent á. Í ljósi þess að hv. þingmaður hefur reynslu af því að vera ráðherra, var hér hæstv. forsætisráðherra á sínum tíma, þá langar mig að spyrja: Ef hæstv. forsætisráðherra væri Sigmundur Davíð Gunnlaugsson núna, hvað myndi hann taka til bragðs þegar svona óskir koma frá okkar einni mikilvægustu atvinnugrein, þ.e. ferðaþjónustunni?