157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:12]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir góða ræðu. Það var í rauninni merkilegt hvað hann komst yfir vítt svið á ekki fleiri mínútum. En mig langar aðeins, frú forseti, að setja þetta í örlítið stærra samhengi því að nú háttar svo til að hv. þingmaður var búsettur í Grindavík þegar áföllin fóru að dynja þar yfir. Samfélagið tók svo eðlilega þátt í að reyna að verja svæðið og mikilvæg mannvirki þar. Í þessu samhengi rann svo umræðan inn í veiðigjöldin síðasta vor og sumar þar sem ítrekað var reynt að benda á hvaða áhrif það gæti haft á staði eins og áðurnefnda Grindavík eða Austurland eða Norðurland, en það var allt réttlætt með því að sá peningur sem þar átti að sækja, 7,5 milljarðar í viðbót, ætti að fara í það að laga vegina. Sama réttlæting er notuð við vörugjaldið, eða við skulum bara kalla það það sem það er vöruskatt og nú kílómetraskatt. Við skulum hætta að nota orðið gjald, þetta er kílómetraskattur. Setjum þetta svo í samhengi við nýkynnta samgönguáætlun því að þar birtist það jú hvernig eigi að skila þessu marglofaða fé til vegasamgangna. Af því að ég byrjaði á að nefna það að hv. þingmaður hefði verið búsettur í Grindavík þegar áföllin dundu yfir þá var nú að dynja yfir áfall á Austurlandi. Þingmaðurinn ætti að geta sett sig í þau spor hvernig eigi að takast á við svona áföll. Áfallið á Austurlandi er hins vegar ekki náttúrulegt, það er mannanna verk. Áfallið á Austurlandi heitir samgönguáætlun. Reyndar er samgönguáætlun, frú forseti, ekki komin til þinglegrar meðferðar, svo að því sé haldið til haga. En ég spyr hv. þingmann: Getur hann sett sig í spor þeirra sem búa fyrir austan og hvernig hugarfarið og líðanin er þar núna?