kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar hér við ræðu minni. Eins og hv. þingmaður kemur inn á er hver skattahækkunin á fætur annarri réttlætt með því að hér sé innviðaskuld, að hér þurfi að fara meiri fjármunir í vegina. Hver skattahækkunin á fætur annarri er réttlætt með því. Fyrst áttu veiðigjöldin að fara þangað og svo erum við að horfa framan í það núna að gjöld af umferð eru að hækka um 12 milljarða, einhvers staðar í kringum það. Þetta eru 19 milljarðar sem er núna búið að réttlæta með því að það eigi að ræsa vélarnar. Hér hefur verið þvílík væntingastjórnun, bara dælt inn væntingunum um að nú verði bara allir vegirnir byggðir. Svo birtist samgönguáætlunin. Það er bara núll. Dýrustu framkvæmdinni var frestað til þess að geta sett aðra ódýrari inn. Annars eru þetta allt framkvæmdir sem fyrri ríkisstjórn var búin að setja á dagskrá, var búið að bjóða út eða eru hafnar og sagt að þetta sé fjármagnað. Af þessum 19 milljörðum eru aðeins 7 að fara aukalega í samgöngumál frá síðustu fjármálaáætlun. Það er til viðhalds vega og til að mæta hinni árlegu þjónustuskuld. Það er það eina sem er nýtt. Og já, samgöngur eru allt fyrir byggðarlög og núna þegar það er samdráttur í öllu atvinnulífi á Íslandi er það að sjálfsögðu áfall ofan í allan samdráttinn í atvinnulífinu þegar slá á allar samgönguframkvæmdir á Austurlandi af á einu bretti.