kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann nefndi í svari sínu frasa sem var búinn til núna nýlega og á greinilega að keyra á því að hann hljómar vel: Ræsum vélarnar. Hæstv. forsætisráðherra hefur verið dugleg að nota þetta, að nú sé verið að ræsa vélarnar. Fyrir austan var búið að undirbúa gangsetninguna. Nú var verið að segja þeim að drepa á þeim. Vélarnar fara eitthvert annað. Þær framkvæmdir sem þó eru tilgreindar á þessu svæði, Austurlandi, eiga flestar eitt sammerkt, þ.e. að vera einhvers konar fögur fyrirheit um hvað næsta eða jafnvel þarnæsta ríkisstjórn ætlar að framkvæma á Austurlandi. Það er einfalt að sjá bara með því að skoða tímalínuna í nýkynntri samgönguáætlun. Það á gjörsamlega að skilja Austurland eftir. Það er auðvitað eitthvað sem þessi salur hér hlýtur að taka á þegar málin koma til þinglegrar meðferðar
Af því að nú töluðum við, ég og hv. þingmaður, um Grindavík áðan, sem var bæjarfélag sem skaffaði mikinn gjaldeyri, má nefna að Austurland er að skaffa u.þ.b. 25%, fjórðung, allra útflutningstekna þjóðarinnar en þeir fá samt ekki vegi nema þeir verði rukkaðir um enn eitt gjaldið. Þú kemst ekkert mikið fjær þjónustunni sem boðið er upp á hér í Reykjavík í boði skattgreiðenda en á Austurland. Þannig að ég ætla að enda þetta, frú forseti, á því að spyrja (Forseti hringir.) hv. þingmann: Treystir hann þinginu til að vinda ofan af þessari vitleysu í nýkynntri samgönguáætlun?