157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:20]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er svolítið góður punktur sem hv. þingmaður kemur inn á: Hvar verða verðmætin til? Það hefur oft hryggt mig hvernig horft er á kostnað einstakra samgönguframkvæmda úti á landi út frá íbúafjölda. Algjörlega galið. Ég held að hátt í fjórðungur af útflutningsverðmætum landsins verði til á Austurlandi. Austurland er ekki einu sinni inni í hafnabótasjóðnum núna af því að tekjurnar af höfninni eru svo miklar að þau borga þetta allt sjálf. Það var ekki alveg eins í Grindavík þar sem er bolfiskhöfn en ekki útflutningshöfn þannig að íbúar Grindavíkur hafa alltaf þurft að vera í ábyrgð fyrir uppbyggingu á höfninni þar. Árlega borgaði Grindavík framkvæmdakostnaðinn við höfnina í veiðigjöld, árlega. Þannig að það að segja að það eigi að taka gjald af sjávarútveginum til að setja í vegina, að nú eigi að taka af ferðaþjónustunni og einstaklingunum í landinu í gegnum ökutækin til að setja í vegina — og á sama tíma er sagt á Austurlandi: Ja, þetta er bara svo dýrt, þetta er ekki forsvaranlegt. Þetta er sagt þar sem verðmætin verða til, þaðan sem tekjurnar koma. Það er ekki verið að skila því til baka. Þetta er alveg ótrúlegt hvernig hægt er að vekja svona upp væntingar og telja fólki trú um eitthvað og segja svo bara: Allt í plati. Þetta er ómerkilegt og þetta er ekki gott til þess að byggja upp traust, hvort sem er á samgönguáætlun eða því hvernig við vinnum þetta áfram. En ég vona að þingið stígi inn og breyti þessu.