kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir tilfinningaþrungna og áhugaverða ræðu. Það er erfitt að skilja þessa ræðu með neinni sanngirni með öðrum hætti en svo að þetta sé nokkuð hörð ádeila á fyrrum formann Sjálfstæðisflokksins og af því að hann þekkir þessi mál mjög vel væri áhugavert að fá upplýsingar hjá hv. þingmanni hvenær fyrrverandi formaður hóf undirbúning við þá kerfisbreytingu sem hér er verið að innleiða. Síðan kom fram að hann hafi alltaf verið á móti þessari breytingu, ef ég skildi hann rétt. Það væri ágætt ef hann gæti skýrt það og hvort það hafi verið víðtæk andstaða, t.d. í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, því að þetta mál kláraðist og var lagt fyrir þingið. Það eru því mjög áleitnar spurningar sem vakna þegar menn fara yfir þessa hluti. Síðan var auðvitað gert ráð fyrir þessu í fjármálaáætlun og er bara áhugavert að vita hvernig þessi andstaða hafi birst, hvað það hafi tekið langan tíma að vinna þetta, frú forseti, til þess að þessi umræða verði sanngjörn og upplýsandi fyrir þá sem á hlýða og við fáum einhvern botn í þetta mál.