157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:24]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir tækifærið til að fá að svara þessu hér í örugglega fjórða sinn. Þetta er búið að vera inntak í öllum mínum ræðum um þetta mál. Fyrsti kafli nefndarálits 1. minni hluta er nákvæmlega um þetta og þú getur séð þetta í öllum þingskjölum en ég svara þessu glaður. Það er þannig að fyrrverandi stjórnvöld settu hér á mikla skattalega hvata til að fjölga nýorkubílum. Það var hröð þróun hér þannig að tekjuöflun af umferð dróst verulega saman þannig að árið 2018 hófst vinna í Stjórnarráðinu, sameiginlega hjá fjármálaráðuneytinu, innviðaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu, við að ákvarða framtíðarmódel af tekjuöflun af umferð. Verkefnastofa fór síðan að skoða ýmsar lausnir. Á sama tíma lögðum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgöngunefnd fram miklar breytingar á samgönguáætlun sem voru samþykktar hér vorið 2019, um veggjöld á stofnbrautir út frá höfuðborgarsvæðinu ásamt göngum úti á landi. Þannig væri hægt að vera hér með svipað kerfi og löndin í kringum okkur eru með og ferðamennirnir og gestirnir þekkja. Þetta var eftir miklar umræður og var umdeilt en var samþykkt. Það var okkar leið en því miður náði það ekki fram að ganga innan samgönguráðuneytisins en ég hef enn von um að núverandi ríkisstjórn taki það upp við stofnun á nýju innviðafélagi og mun styðja hana í því. En úr því að það var ekki komið til framkvæmdar þá var lagt til, til þess að nýorkubílarnir myndu greiða eitthvað, að kílómetragjaldið yrði tekið upp á þá. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur því aldrei lagt fram kílómetragjald á allar tegundir ökutækja, aldrei, og andstaðan innan Sjálfstæðisflokksins hefur alltaf verið mikil við það, svo ég upplýsi hv. þingmann um það.