kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Það er engu að síður alveg ljóst að það var lagt fram frumvarp með stuðningi Sjálfstæðisflokksins, vænti ég, á þingi fyrir ári síðan. Það er því svolítið óskiljanlegt hvernig menn skipta svona algerlega um hest í miðri á og eru núna algerlega á móti því frumvarpi sem þeir lögðu sjálfir fram. Jú, menn hafa bent á að vel sé hægt að setja hér upp veggjöld til að innheimta gjöld sem svara þeim kostnaði sem verður við að þjóna umferðinni og byggja upp landið. En við erum í þeirri stöðu núna að 40% af vegakerfinu liggja undir skemmdum. Við erum að snúa þessu við og ef við ætlum að taka upp nýtt kerfi þá tekur það eflaust einhvern tíma. Mér finnst þetta því ekki vera ábyrgt, með fullri virðingu fyrir hv. þingmanni, því að ég veit að hann er talnaglöggur og sanngjarn, þá finnst mér þetta ekki vera ábyrgt að ætla ekki að fara í einhverja tekjuöflunarleið sem menn voru þó búnir að samþykkja fyrir rúmu ári. Mér finnst að þessi umræða þurfi að fara á örlítið hærra plan, ef ég má nota það orð hér úr þessum ræðustóli, þannig að við getum rætt þetta af einhverju viti, að menn séu ekki bara búnir að skipta um plötu ári eftir að hafa stutt svona frumvarp. Og það verður að vera gert með frekari rökstuðningi en þeim að menn hafi alltaf viljað eitthvað annað.