157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur. Mér þykir miður að heyra að hv. þingmenn stjórnarflokkanna hafi ekki kynnt sér gögn þingsins. Ef þeir trúa því sem þeir eru að segja hér þá hef ég verulegar áhyggjur af því hvert við erum komin því það hefur komið ítrekað fram, ef hann hefur kynnt sér gögnin eins og hann lætur í veðri vaka að hann hafi gert um hvað var í gangi fyrir ári síðan, þá virðist hann ekki hafa lesið einn staf af þeim. Vissulega kom fjármálaráðherra úr ríkisstjórn hér með frumvarp um kílómetragjöld fyrir ári síðan. En hvernig endaði það? Það endaði þannig að eftir 1. umræðu komu allir stjórnarflokkarnir og vísuðu málinu frá. Það kom aldrei stuðningur úr þinginu við þetta mál, aldrei. Hv. þingmaður vísar hér í fjármálaáætlun 2023, að það hafi verið gert ráð fyrir þessu þá. Hvernig var það gert? Það var gert með því að setja vörugjöld á nýorkubíla og draga úr skattalegum hvötum, hækka bifreiðagjöld og annað slíkt og setja kílómetragjald á nýorkubíla. Það var gert þannig. En hvað er hæstv. ríkisstjórn að gera núna? Hún er að afnema þessar tekjur, afnema þær. Kynntu þér málið, hv. þm. Sigurjón Þórðarson. Þetta er allt saman skýrt og liggur fyrir í öllum þinggögnum. Þið eruð að gefa frá ykkur tekjur og þú ert að tala um tekjuöflun hér á ábyrgan hátt. Það er bara óábyrgt það sem þið eruð að gera.

Þegar hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson lagði fram kílómetragjaldið síðast þá var hann ekki með 7,5 milljarða hækkun á vörugjöldum. Hann var ekki að senda reikninginn á landsbyggðina í gegnum þungaflutningana. Málið hefur snarversnað hjá þessari ríkisstjórn, það er orðið margfalt verra. Þessu er ekki saman að líkja og ég hvet hv. þm. Sigurjón Þórðarson til að kynna sér gögnin áður en hann fer að rífa sig hér.