157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:30]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla hér í þriðju ræðu um kílómetragjald á ökutæki aðeins að reyna að draga saman helstu punkta og áherslur mínar í þessu máli. Þetta var ansi víðfeðm yfirferð hjá þeim sem hér stendur og þurfti tvær ræður til og mig langar að reyna að draga þetta saman hér í þeirri þriðju.

Eins og ég hef sagt þá er ég í sjálfu sér ekkert á móti hugmyndafræðinni á bak við þetta frumvarp. Það þarf að breyta reglum varðandi það hvernig við skattleggjum umferð eftir að þessar breytingar sem við höfum séð núna á ökutækjum eru að verða meiri og meiri. Við erum að fá fleiri rafmagnsbíla og alveg klárt að einhvern veginn þurfa þeir að borga eins og aðrir fyrir uppbyggingu vegakerfisins. Eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom svo vel inn á hér þá hafa orðið breytingar á þessu frumvarpi frá því að það var lagt fram síðast sem eru þess eðlis að það er í raun og veru vonlaust, illvonlaust, að styðja þetta frumvarp eins og það er fram lagt, fyrir utan það, eins og hv. þingmaður nefndi sömuleiðis, að ofan í þetta erum við að sjá 7,5 milljarða vegna vörugjalda sem koma þá ofan í þetta sömuleiðis.

Það sem ég hef verið að benda á hér í mínum athugasemdum er kannski aðallega tvennt. Svo er náttúrlega endalaust hægt að telja hér upp varðandi leigubíla, varðandi mótorhjól, varðandi fornbíla og fleiri svona minni atriði en samt atriði sem skipta verulegu máli og skipta hagaðila, sem eru t.d. leigubifreiðastjórar, verulegu máli. En það eru áhrifin á landsbyggðina og ég get illa sætt mig við það að hér sé verið að leggja fram frumvarp sem mun hafa þær afleiðingar, og það kemur fram í frumvarpinu, að flutningskostnaður til og frá landsbyggðinni mun aukast. Í því frumvarpi sem við höfum rætt hér áður var gjaldið á tengivagna fest í 70%. Það var búið að reikna út að það yrði nokkurn veginn tekjuhlutlaust að gera það með þeim hætti. Nú erum við að sjá hér að þetta fer í 60% á næsta ári, 80%, þar á eftir og 100% árið 2028 sem er algerlega borðleggjandi að mun auka kostnað þeirra fyrirtækja sem eru úti á landi og þurfa annaðhvort að koma vörum til sín eða frá sér. Þetta mun, virðulegur forseti, ekki gerast á neinn annan hátt en þann að þetta fer út í verðlagið þannig að verðlag á landsbyggðinni mun að öllum líkindum hækka. Þetta get ég ekki sætt mig við.

Varðandi bílaleigurnar þá var afar athyglisverður fundur í morgun. Það var skattspor ferðaþjónustunnar, sem snerist um kílómetragjaldið að stærstu leyti. Þar var til svara hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Daði Már Kristófersson. Ég skora bara á þingmenn sem ekki hafa horft á þennan þátt, hann er aðgengilegur á vef ferðaþjónustunnar, að gera það. Ég verð að segja að svör ráðherra og viðmót hans gagnvart ferðaþjónustunni þar og bílaleigum ollu mér vonbrigðum. Það er alveg ljóst að það er ekkert hægt að leggja þetta frumvarp fram núna, kannski samþykkt 18. desember eða hvenær sem það verður samþykkt, og ætlast til þess að bílaleigurnar breyti kerfinu sínu 12 dögum seinna. Það er ákveðinn ómöguleiki í því. Það sjá þetta allir, virðulegur forseti. Þetta er að fara að auka kostnað bílaleiganna verulega. Menn eru að tala um 1,5 milljarða jafnvel á næsta ári og við höfum séð það, eins og ég sagði í minni ræðu, að þetta er farið að bíta okkur. Þetta er farið að bíta okkur úti á landi. (Forseti hringir.) Við höfum séð að Avis er búið að loka sínum stöðvum, m.a. á Sauðárkróki, og Ísafirði hef ég heyrt, og ég óttast að þær verði fleiri. (Forseti hringir.) Ég skora á hæstv. ríkisstjórn og meðlimi hennar að endurskoða þetta frumvarp fyrir 3. umræðu.