157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:36]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér kílómetragjald á ökutæki í þaula, hugsanlega fram á kvöld og inn í nóttina. Það eru margir sem vilja taka til máls enda eru margar skoðanir á þessu máli og ekki allir á eitt sáttir. Ég vil hins vegar taka það skýrt fram í byrjun að málefnastarf efnahags- og viðskiptanefndar hefur verið til fyrirmyndar og ég vil jafnframt þakka framsögumanni málsins, Pawel Bartoszek, fyrir hans miklu og góðu vinnu við þetta mál og sömuleiðis stjórnarandstöðunni sem hefur verið málefnaleg í starfi nefndarinnar. Þar hafa menn ýmsar skoðanir uppi, efasemdir og allt sem lýtur að rýni málsins.

En um hvað fjallar þetta mál? Þetta fjallar fyrst og fremst um það að okkur vantar fjármuni til nýframkvæmda á vegum úti. Okkur vantar fjármuni til viðhalds og okkur vantar heilmikla fjármuni til heilsársþjónustu á vegum þessa lands. Það er einhver mesta og mikilvægasta framlagning, almenningi til heilla, að bæta vegi landsins. Innviðaskuldin nemur núna, að því er talið er, um 180 milljörðum og er það líklega vanmetið, 180 milljarðar. Við verðum að hefja nýja sókn í nýframkvæmdum hér á landi, byrja að bora göng eftir langvarandi þöggun borana í fjöllum landsins og stytta leiðir á milli byggða í landinu til þess að byggðin haldist í byggð og sömuleiðis til þess að fólkið fari styttra á milli heimilis og vinnu og fyrirtækin eigi auðveldara með að fá aðföng og flytja vörur sínar á markað.

Þessi kerfisbreyting hefur verið árum saman í bígerð, líklega allt frá árinu 2018 þegar hugmyndir kviknuðu í fjármálaráðuneytinu í tíð þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, þess ágæta manns. Ástæðan var á að giska einföld; tekjur af olíugjaldi og vörugjöldum höfðu dregist ákaflega mikið saman á árunum frá aldamótum. Ég hygg að tekjur af olíugjaldi og vörugjöldum hafi verið 3% af landsframleiðslu árið 2000. Fimm árum seinna, árið 2005, voru þær tekjur komnar niður í 1,7% af landsframleiðslu og 1% árið 2015, þannig að þær höfðu lækkað um þriðjung. Andlag þess er að það voru ekki nægir peningar til að byggja upp vegi og viðhalda þeim, hvað þá að halda úti heilsársþjónustu, sem ný stjórnvöld ætla að laga með miklum mun hærri framlögum til heilsársþjónustu heldur en verið hafa um nokkurt árabil. Sum sé, hugmyndin kviknaði árið 2018 af þessum ástæðum, að tekjur hrundu af jafnt vörugjöldum og olíugjaldi og það er af ástæðum sem augljósar eru; þegar 55.000 rafmagnsbílar koma inn til landsins á tiltölulega stuttum tíma.

Við þurfum þar af leiðandi kerfisbreytingu. Við þurfum alla bíla í sama kerfi. Það er eðlilegt. Gamla kerfið var orðið úrelt. Gamla kerfið er úrelt. Við ætlum hins vegar að fara ýmsar leiðir að settu marki. Tekjulægri borga minna samkvæmt áhrifamati. Landsbyggðin kemur á að giska betur út hvað varðar þá bíla sem þar eru í notkun. Dráttarvélar eru undanþegnar þessu. Við lögðum mikla áherslu á það í nefndinni að þetta myndi ekki bitna á bændum þessa lands sem eru að nota sínar dráttarvélar á takmörkuðu plássi og nota þjóðvegina lítt eða ekki. Síðan mun þetta jafnframt þýða að eldsneytisverð hér á landi, þegar olíugjaldið er farið út, verður miklu gagnsærra og það verður auðveldara fyrir almenning og eftirlitsstofnanir að fylgjast með því að olíufélögin haldi sig við eðlilegt eldsneytisverð miðað við heimsmarkaðsverð. Verðið verður gagnsærra. Olíufélögin hafa getað skákað í skjóli þess að olíugjaldið hafi truflað þá mynd sem blasir við af olíugjaldinu.

Auðvitað eru álögur af þessu tagi ekki óumdeildar. Það eru uppi margvíslegar skoðanir, þar á meðal á milli hægri manna og vinstri manna. Hægri menn hafa talað á að giska í öllum tilvikum á móti hærri sköttum, hærri álögum. Það er þeirra pólitík. En það er hins vegar pólitík þessarar stjórnar að koma til móts við þá fjárþörf sem blasir við um allt land og ég held að í lok dags séu allir þingmenn í þessum sal sammála um að það þarf að ráðast í vegabætur á öllu landinu. Þess vegna erum við að breyta þessu kerfi. Við erum að koma til móts við uppsafnaða þörf. Það er það framlag sem mun gagnast öllum landsmönnum og öllum fyrirtækjum hringinn í kringum landið. Það er mjög mikilsvert. Við þurfum á næstu árum að horfast í augu við það að ef við förum ekki í veigamiklar umbætur á vegum landsins og styttum leiðir, þá mun byggðafesta truflast að verulegu leyti. Við munum tapa íbúum í byggðum landsins úti á landi vegna þess að vegir verða bara einfaldlega ekki nógu góðir, ekki í samræmi við það sem tíðkast í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Fólksfjöldinn mun safnast á svæðinu milli Hvítánna. Það er framtíðarsýn sem mér hugnast ekki. Það er framtíðarsýn sem ég tel bölvanlega fyrir framtíð landsins vegna þess að þá missum við niður þjónustustigið fyrir svo margar atvinnugreinar hringinn í kringum landið, þar með landbúnað, sjávarútveg og ferðaþjónustu. Þá framtíðarsýn verðum við að forðast, ekki síst með uppbyggingu vega. Þess vegna styð ég þetta mál og tel að það verði til bóta, það muni leiða til styttri leiða og betri vega. En auðvitað verður að horfa hins vegar til nokkurra þátta og fylgjast vel með þeim.

Það er uggur í mínu brjósti að olíufélögin skili ekki olíugjaldinu. Það er uggur í mínu brjósti. Það verður því að fylgjast gjörla með því að svo fari ekki, m.a. með aðstoð Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Neytendasamtakanna og eftir atvikum fleiri aðila og við köllum eftir því í nefndaráliti að ráðherra flytji þinginu skýrslu árlega um þessi atriði. Við þurfum líka að fylgjast gjörla með því hvernig vöruverð úti á landi þróast. Þar er ég alveg tilbúinn að skoða þá leið sem Framsóknarmenn hafa nefnt hér í ræðustól, þar á meðal hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, hvort við ættum að festa 70% leiðina í sessi í staðinn fyrir að fara 60, 80 eða 100 inn í komandi ár, allt til 2028. Það er að mörgu leyti sanngjörn leið. Ég er tilbúinn að skoða hana vegna þess að hún getur komið til móts við vöruflytjendur, og þetta er viðkvæmt mál, landsbyggðarhjarta mitt slær ört hvað þetta varðar og við megum ekki við því að andlag þessa máls verði með þeim hætti að vöruverð úti á landi hækki. Það þarf að fylgjast vel með því af þar til bærum aðilum. Við þurfum líka að fylgjast með öðrum byggðaáhrifum þessa máls. Við þurfum líka að skoða hvort framlagning þessa máls sé um of íþyngjandi fyrir bílaleigur landsins. Það er eðlilegt að það sé gert. Ég hef á síðustu dögum talað við ótal marga bílaleigjendur sem óttast áhrif þessa máls. Þeir hafa haft mörg ár til að laga sig að nýjum aðstæðum, við getum talað um einhver fimm ár vegna þess að málið hefur verið það lengi á döfinni, allt frá því á árinu 2018 eins og ég gat um í byrjun. Það er alveg ljóst að þetta mál hefur verið á leiðinni í langan tíma. Það þarf því að skoða marga þætti í þessu, e.t.v. á milli 2. og 3. umræðu, t.d. hvort greiðslukerfi bílaleigjenda til ríkisins, endurgjaldið, sé of flókið og hvort þeir muni ekki vera búnir að afla þeirra tekna þegar þeir þurfa að borga til ríkisins þá fjármuni sem þeir eru að innheimta o.s.frv.

Öll mannanna verk má gagnrýna, þar á meðal þetta, en í heildina tel ég þetta mál vera til góðs. Í heildina horfum við til þess að það þarf að breyta um kerfi. Gamla kerfið er úrelt og þess vegna förum við nýja leið. Ég vek athygli á því að þetta er búið að vera árum saman í bígerð og svokallaðir hagaðilar hafa vitað að stjórnvöld væru að fara þessa leið, hvort heldur það er Sjálfstæðisflokkurinn eða Framsóknarflokkurinn eða Samfylkingin eða Viðreisn. Þessir flokkar hafa á síðustu árum verið að stefna í þessa átt og nú blasir breytingin við og ég hygg að hún sé til góðs.