157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:47]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu þó að ég hafi nú kannski ekki verið alveg sammála öllu sem þar kom fram, veit ekki hvort það standist allt skoðun. En ég þakka líka hv. þingmanni fyrir góða samvinnu í nefndinni í þessu máli. Þrátt fyrir góða vinnu í þessu máli í nefndinni þá breytir það því ekki hversu agalegt þetta mál er og hversu slæmar afleiðingarnar verða.

Mig langar að byrja á að spyrja hv. þingmann hvað það er sem gerir núverandi kerfi úrelt. Hvað er úrelt í núverandi kerfi? Ef það er svona úrelt, af hverju ætla stjórnvöld að nota kerfið áfram? Kerfið verður áfram notað til að innheimta kolefnisgjöld og virðisaukaskatt. Það þarf að borga kolefnisgjöldin miðað við lítra áfram þannig að það er bara verið að taka hluta. Það er verið að búa til nýtt kerfi ofan á gamla kerfið og keyra þau bæði samhliða. Hvað er úrelt? Hvað finnst hv. þingmanni um það að kostnaðurinn við að bæta nýja kerfinu ofan á gamla úrelta kerfið er meiri fyrir atvinnulífið heldur en það gefur í tekjuauka?

Seinni spurningin er sú — ég get tekið undir með hv. þingmanni að ég vil ekki sjá alla byggð þróast milli Hvítánna. Verðmætasköpunin er hringinn í kringum landið og þar viljum við hafa blómlega byggð. Þar þarf að gera við vegina. Því vil ég spyrja hv. þingmann: Af hverju fer ekki ein króna af þessum 3,3 milljörðum sem þetta á að skila í vegina? Ég bara skil það ekki. Það er verið að réttlæta þetta kerfi til að byggja upp vegina, ræsa vélarnar, og það er ekki ein króna sett í það. Það á ég mjög erfitt með að skilja. Það eru þessar spurningar: Hvað er úrelt, kostnaður atvinnulífsins og af hverju fer þetta ekki í vegina?