157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:49]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir þetta andsvar sem er ósköp eðlilegt. Við höfum tekist á í hv. efnahags- og viðskiptanefnd um þessi atriði. Hvað er úrelt? Þetta kerfi sem við höfum notað um árabil hefur ekki svarað þeim breytingum sem við höfum séð á síðustu árum, allt frá árinu 2000 eins og ég gat um. Þá voru tekjur sem hlutfall af landsframleiðslu um 3% í þessu gamla kerfi en fóru niður í 1% árið 2015 sem er gríðarleg breyting á ekki nema einum og hálfum áratug. Nýja kerfið þar sem allir bílar eru í sama kerfi endurspeglar í rauninni þann nýja raunveruleika sem blasir við þegar hreinorkubílar eru komnir inn í kerfið, þeir nema tugþúsundum og verða væntanlega á komandi ári og jafnvel á styttri tíma hátt í 100.000 hér á vegum landsins. Að mínu viti er eðlilegt að það sé komið á kerfi sem svari til allra bifreiða í landinu, það sé eitt kerfi fyrir alla bíla. Um það snýst þetta mál. Ríkisstjórnin ætlar sér með róttækum hætti að fara í vegauppbyggingu með öllum ráðum, ekki bara þessu heldur öllum ráðum á komandi árum og hefur einsett sér að auka viðhald heilsársþjónustu og nýframkvæmdir, þar á meðal að bora ný göng. Ef hv. þingmaður skoðar einfaldlega málefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar, sem er u.þ.b. ársgömul, þá er það eitt helsta áhersluatriði hennar að rífa vélarnar aftur í gang. Það er augljóst mál.