157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:51]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina en svörin voru miklu meira bara orð um það að þetta hafi ekki svarað kallinu og annað slíkt. Hann segir að tekjurnar hafi ekki aukist. Það hefur verið brugðist við tekjufallinu með því að setja kílómetragjald á nýorkubíla af því að þeir fara ekki á dæluna. Dælan er einfaldasta kerfið. Þú bara borgar á staðnum. Ég hef miklar áhyggjur af því sem verður fyrir aldraða, tekjulægri og aðra þegar þeir fá bakreikningana eins og er að gerast með rafmagnsbílana núna. Ég skil ekki af hverju það er verið að segja að kerfið sé ónýtt þegar það er notað áfram til að rukka kolefnisgjaldið á dælunni. Það er bara munurinn. Það eina sem núverandi stjórnvöld — ég sé stjórnarsáttmálann, ég sé öll spjöldin frá auglýsingadeild Samfylkingarinnar um að það eigi að rífa vélarnar í gang. En ef ég skoða tölurnar þá er það bara veiðigjaldapeningurinn sem fer í það að auka viðhald á vegunum og í vetrarþjónustuna. En 12 milljarðarnir sem á að taka af umferðinni — ekki króna. Ekki í neinni (Forseti hringir.) fjármálaáætlun, ekki í neinum fjárlögum eða neitt.