157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:52]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við eigum eftir að sjá hvaða peningar renna til nýframkvæmda á vegum úti og til viðhalds og heilsársþjónustu. Það er vilji stjórnvalda að sem mestur peningur fari í þessa þætti úr þeim sjóðum sem eru þar til bærir. Það má alveg deila um það hvort við eigum að halda áfram með olíugjaldið. Það má alveg deila um það. Það má alveg viðra misjafnar skoðanir í þeim efnum en ég kom inn á það í minni ræðu að olíugjaldið hefur gert verðlagningu í þessum geira svolítið loðna og olíufélögin hafa getað skákað í skjóli þess að verðlagningin sé nokkuð óljós út af olíugjaldinu. Það að taka olíugjaldið út býr til gagnsærra verð og ég held að það sé mjög til góða fyrir fólkið í landinu og fyrirtækin að eldsneytisverð verði langtum og mun meira gagnsærra en það hefur verið (Forseti hringir.) og fyrir vikið geta olíufélögin ekki skákað í skjóli þess.