157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:54]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér upp og halda ræðu í þessu máli. Ég fagna þeim stjórnarþingmönnum sem það hafa gert, þeir hafa því miður ekki verið margir en ég fagna þeim sem koma. Það er ánægjulegt að heyra sjónarmið hv. þingmanns varðandi þetta mál og ég deili áhyggjum hans af landsbyggðinni. Ég held að hjörtu okkar slái svipað hvað það varðar. Hv. þingmaður talaði um að einhvern veginn væri hægt að koma þessu niður í 70%, sem ég hef talað mikið fyrir, en ég hef hins vegar áhyggjur af því, og það vekur með mér ákveðinn ótta að menn eru ekki búnir að því núna, að það verði ekki gert. Sömuleiðis hef ég áhyggjur af bílaleigunum, að þetta hafi áhrif á landsbyggðina með styttri ferðum og færri dögum. Ég hef sömuleiðis sömu áhyggjur þar, að fyrst menn eru ekki búnir að gera þetta fyrir 2. umræðu þá verði erfitt að gera þetta fyrir þá síðustu, sér í lagi þegar svigrúmið sem ríkisstjórnin hefur virðist vera 28 milljónir út af stöðugleikareglunni.

Ég hjó hins vegar eftir því sem hv. þingmaður sagði, að við ættum eftir að sjá hvað færu miklir peningar í samgöngur. Það eru náttúrlega bara fjárlögin sem segja okkur til um það. Þar er aukningin 7,6 milljarðar. Það er bara gott og blessað. Það er eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason sagði hér áðan, það eru veiðigjöldin sem okkur var lofað að færu í framkvæmdir úti á landi. Síðan eru það vörugjöldin sem okkur hefur verið lofað að fari í framkvæmdir úti á landi og svo núna kílómetragjaldið, það eru 3,3 milljarðar sem sömuleiðis eiga að fara út á land. En það er ljóst að þeir peningar sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa talað um að eigi að fara út á land eru ekki að koma allir, ekki samkvæmt fjárlögum sem við erum að ræða núna. (Forseti hringir.) Hvað þessa 7 milljarða varðar get ég ekki betur séð en að það sé áætlað að 7 milljarðar fari í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem er nýtt. (Forseti hringir.) Hvar eru landsbyggðarpeningarnir?